Heilsa og lífsstíll

„Fall er farar­heill“

Jón Þór Stefánsson

2025-03-26 13:49

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Guðmundur Ingi Kristinsson, sem er nýtekin við embætti mennta- og barnamálaráðherra, viðurkennir ræða hans á opnunarsamkomu leiðtogafundar um menntamál hafi ekki verið nægjanlega góð. Hann segir viðbrögð fólks við ávarpinu eðlileg en ætlar halda ótrauður áfram.

Það var síðastliðinn sunnudag sem Guðmundur tók við embættinu eftir afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur. Það var síðan daginn eftir, í gær mánudag, sem hann byrjaði daginn á ávarpa leiðtogafundinn sem fer fram í Hörpu um þessar mundir.

Guðmundur segir tilhugsunin um stökkva beint í djúpu laugina, fara í svona stórt verkefni á fyrsta degi, hafi verið nokkuð hrollvekjandi.

Ég skal alveg viðurkenna ég fékk hálfgerðan hroll þegar ég hugsaði um það ég færi beint hingað, með fullt af kollegum og kennurum. En eftir á að hyggja þá var þetta það besta sem gat gerst. Því hér fékk ég gífurlegt magn af góðum upplýsingum um mitt starf og hvað er fram undan. Þannig ég er bara guðsfeginn byrja hér.

Áðurnefnd ræða Guðmundar var á ensku. Mikil umræða hefur skapast á netinu um enskunnáttu hans í kjölfarið. Sumir segja óviðunandi ráðherra tali ekki betri ensku, en aðrir hafa sakað þá sem segja það um menntahroka, og finnst eðlilegt tungumálakunnátta valdafólks misgóð.

Hvað finnst þér um þessi viðbrögð?

Ósköp eðlileg, vegna þess ég lenti þarna í vandræðum. Ég skal alveg viðurkenna það. Ég lenti í vandræðum með stafi og ljósið. Þetta var ekki nógu og gott, en fall er fararheill. Ég bara held áfram.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 274 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 83,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,58.