Slys og lögreglumál

Það sem við vitum og vitum ekki um mann­drápið hrotta­lega

Kolbeinn Tumi Daðason

2025-04-04 07:03

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þrír karlmenn sæta enn einangrun grunaðir um aðkomu manndrápi karlmanns í Þorlákshöfn á sjötugsaldri. Tveir þeirra hafa komið við sögu lögreglu í umtöluðum sakamálum. Spurningunni hvernig og hvers vegna ofbeldisfólkið komst í samband við karlmanninn er ósvarað. Vinkona segir hinn látna hafa verið einstakan mann.

Það var rétt fyrir miðnætti mánudagskvöldið 10. mars sem lögreglan fékk tilkynningu um óttast væri um karlmann á sjötugsaldri sem hefði yfirgefið heimili sitt í Þorlákshöfn fyrr um kvöldið. Fljótt beindist grunur því mögulega væri um frelsissviptingu ræða.

Karlmaðurinn, Hjörleifur Haukur Guðmundsson, fannst snemma morgni þriðjudagsins 11. mars við göngustíg í Gufunesi í Reykjavík. Hann var þungt haldinn og lést skömmu eftir komu á slysadeild Landspítalans.

Átta karlar og þrjár konur handtekin

Lögregla handtók á fyrsta sólarhring rannsóknarinnar átta manns, bæði karla og konur, í tengslum við rannsókn sína á málinu. Kom fram rannsóknin beindist því hvort fólkið hefði svipt Hjörleif frelsi, kúgað úr honum og orðið honum bana.

handtaka sem vakti mesta athygli var í Kópavogi þar sem lögregla veitti svartri Teslu eftirför þar til ökumaðurinn, Stefán Blackburn, var leiddur upp í lögreglubíl í handjárnum. Kona var einnig farþegi í bílnum, flúði af vettvangi en var handtekin í framhaldinu eftir leit lögreglu.

Af þeim átta sem voru handteknir á fyrsta sólarhring voru fimm fljótlega látnir lausir. Bendir það til þess lögregla telji viðkomandi ekki tengjast rannsókn málsins með beinum hætti.

Síðan þá hafa þrír til viðbótar verið handteknir og því ellefu alls. Af þeim hafa fjórir karlmenn og þrjár konur sætt einangrun í gæsluvarðhaldi sökum rannsóknarhagsmuna. Tveimur konum var sleppt fyrir rúmri viku og í gær voru karl og kona látin laus. Samkvæmt heimildum fréttastofu á ein kvennanna nokkurn sakarferil baki og þá helst fyrir fíkniefnamisferli.

Eftir sitja þrír karlmenn sem verða að óbreyttu í einangrun næstu vikuna. Lögregla grunar þá þrjá um aðild frelsissviptingu, fjárkúgun og manndrápi. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa verjendur að minnsta kosti tveggja sakborninga kært úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald til Landsréttar

Hinir grunuðu af ólíkri kynslóð

Fréttastofu er ekki kunnugt um tengsl karlmannanna þriggja sem sæta einangrun. Stefán Blackburn hefur hlotið nokkra dóma fyrir ofbeldisbrot en þar vakti mesta athygli Stokkseyrarmálið svokallaða. Þar voru þeir Stefán Logi Sívarsson dæmdir í sex ára fangelsi en málið snerist um frelsissviptingu og líkamlegt ofbeldi gagnvart karlmanni sem numinn var á brott.

Hinir tveir sem sæta haldi eru mun yngri en Stefán sem verður 34 ára síðar á árinu.

Annar þeirra, Lúkas Geir Ingvarsson sem er 21 árs, hefur hlotið sex mánaða dóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem hann framdi aðeins átján ára. Tekið var tillit til ungs aldurs hans við ákvörðun refsingar. Þá var Lúkas Geir á meðal brotaþola í Bankastræti Club málinu svokallaða þar sem hópur grímuklæddra karlmanna réðst inn á samnefndan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur með hnífa á lofti.

Þriðji karlmaðurinn er enn yngri eða á nítjánda aldursári. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um brotaferil hans. var handtekinn strax um morguninn miðsvæðis í Reykjavík eftir Hjörleifur fannst í Gufunesi. Stefán var handtekinn á Teslunni síðar þann dag en Lúkas Geir nokkrum dögum síðar.

Á viðkvæmu stigi og gefa lítið uppi

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir rannsókn málsins hafi gengið mjög vel en hún þó á mjög viðkvæmu stigi.

Lögregla haldi spilunum mjög þétt sér og hefur lítið annað komið fram í máli lögreglu umfram það sem birtist í reglulegum tilkynningum vegna málsins á Facebook-síðu lögreglunnar. Meðal annars það lagt hefur verið hald á nokkra bíl, farið hefur verið í húsleit á nokkrum stöðum og fjöldi vitna verið yfirheyrður.

Þá hefur lögreglan stuðst við myndefni úr eftirlitsmyndavélum í Þorlákshöfn en einnig myndefni og gagnlegar ábendingar frá almenningi.

Stóra ósvaraða spurningin

Samkvæmt heimildum fréttastofu tókst hinum grunuðu þvinga karlmanninn til millifæra háa fjárhæð undir hótunum. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru litlar líkur taldar á því peningarnir komi í leitirnar. Sveinn Kristján segist aðspurður ekkert geta tjáð sig um hvernig gengið hafi endurheimta fjármunina.

Stóra spurningin gagnvart almenningi hlýtur vera hvernig ofbeldismenn komast í samband við karlmann á sjötugsaldri í Þorlákshöfn með svo hrikalegum afleiðingum.

Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess hinir grunuðu tengist hinum látna, Hjörleifi Hauki Guðmundssyni með nokkrum hætti. Hjörleifur var 65 ára karlmaður, bjó með eiginkonu sinni í Þorlákshöfn, átti einn son úr fyrra sambandi og þrjú stjúpbörn með eiginkonu sinni.

Sagður einstakur maður með frábært skopskyn

Hjörleifur, sem var yfirleitt kallaður Gasi, var sjómaður framan af starfsævi en starfaði lengstan hlut starfsævi sinnar við stál- og smiðjuvinnu. Hann var mikill áhugamaður um mótorhjól og meðlimur í Sniglunum. Samkvæmt heimildum fréttastofu glímdi hann við veikindi undanfarin ár og sótti þjónustu reglulega á Selfoss sökum heilabilunar.

Inda Björk Eyrbekk Alexandersdóttir, stórvinkona Hjörleifs, lýsti Hjörleifi sem einstökum manni með frábært skopskyn í minningargrein í Morgunblaðinu á dögunum.

Undanfarin ár glímdi Gasi við erfiða heilabilun sem gerði hann útsettari fyrir klóm misindisfólks sem vildi honum ekkert nema illt, fólks sem virti hann ekki sem manneskju. Ég vildi óska hann og fólkið hans hefði verið gripið eins og vel og hann greip aðra. Ég vildi óska við byggjum við öflugra heilbrigðiskerfi sem umvefur viðkvæmt fólk og gætir fyrir hættum heimsins.

Það er mín einlæga ósk fólk sem villist af leið í lífinu fái nauðsynlega aðstoð því það er samfélagslegur ávinningur sem hlýst af því ef hægt er sporna markvisst við vaxandi ofbeldishegðun og neyslu hugbreytandi efna. Við sem samfélag verðum gera betur.

Tálbeituaðgerðir undir smásjánni

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hluti grunaðra í málinu verið undir smásjá lögreglu vegna tálbeituaðgerða ungs fólks sem tekið hefur lögin í sínar eigin hendur. Þar hefur þeirri aðferð helst verið beitt búa til falska aðganga barna á samfélagsmiðlum á borð við Snapchat til vingast við fullorðna karlmenn sem sækja í börn.

Eftir samtal í gegnum samskiptamiðilinn er boðað til hittings þangað sem hópur fólks mætir, situr fyrir meintum níðingi og gengur í skrokk á viðkomandi. Fjölmörg myndbönd með slíku ofbeldi hafa farið í dreifingu undanfarna mánuði.

Lögreglan varar náttúrulega eindregið við þessu og mælir alls ekki með þessu. fólk taka lögin í sínar eigin hendur, og hvað þá með ofbeldi. Það getur leitt af sér mjög hættulegar aðstæður og fólk getur misst stjórn á aðstæðum. Hlutir farið úr böndunum í báðar áttir, sagði Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn í fréttum Stöðvar 2 í janúar.

Aldrei bendlaður við barnagirnd

Inda Björk, stórvinkona Hjörleifs Haukur, sagði í samtali við DV á dögunum Hjörleifur Haukur hefði aldrei verið bendlaður við barnagirnd.

Hann var ekki fara hitta einhverja stelpu undir lögaldri, sagði Inda Björk. Sannleikurinn myndi koma í ljós um síðir.

Hann Gasi var hrifsaður burt á versta og grimmasta máta sem hægt er hugsa sér. Hvernig getur maður sætt sig við slík örlög? Af hverju erum við sem getum talist til eðlilegra manna neydd til búa í samfélagi með fólki sem virðir ekki líf, heilsu og líðan annarra? Hvert erum við komin þegar litla Ísland er ekki lengur öruggt fyrir fólki sem beitir hrottalegu ofbeldi með eins ömurlegum afleiðingum, sagði Inda í minningargreininni.

Hvenær fáum við skýrari mynd á málið?

Almenna reglan í sakamálum er lögregla getur haldið sakborningum í gæsluvarðhaldi í allt tólf vikur án þess ákæra hafi verið gefin út í málinu.

Gæsluvarðhaldsúrskurðir yfir sakborningum eru almennt ekki birtir á vef Landsréttar á meðan rannsókn lögreglu er á viðkvæmu stigi. Í greinargerð lögreglu, sem eru birtar í gæsluvarðhaldsúrskurðum, rekur lögregla málið og færir rök fyrir því af hverju viðkomandi þurfi vera áfram í gæsluvarðhaldi. Því telja ólíklegt gæsluvarðhaldsúrskurðir verði birtir fyrr en hinir grunuðu verða lausir úr einangrun.

Lykilatriði í málinu og sjónarhorn sakborninga kemur yfirleitt ekki fram fyrr en þeir svara til saka í dómsal við aðalmeðferð máls. Það gætu verið nokkrir mánuðir í það. Til samanburðar er nýhafin aðalmeðferð í manndrápsmálinu á Menningarnótt, átta mánuðum eftir stúlku á menntaskólaaldri var ráðinn bani.

Nafnalisti

  • Ævar Pálmi Pálmasonyfirmaður kynferðisbrotadeildar
  • Bankastræti Clubskemmtistaður
  • Facebook-síðufylgdi pistli um sumarskrifstofu samgönguráðherrans Ketil Solvik-Olsen, þegar lesandi benti á í athugasemd að skrifstofunni, fjölsæta bifreið með sportlegum reiðhjólum áfestum, var einmitt lagt á akrein sem ætluð er þeim síðarnefndu
  • Hjörleiffyrsta nafn
  • Hjörleifur Haukur
  • Hjörleifur Haukur Guðmundsson
  • Inda Björk Eyrbekk Alexandersdóttirmóðir drengsins
  • Lúkas Geir Ingvarsson
  • Stefán Blackburnnafni
  • Stefán Logi Sívarssonrúmlega fertugur karlmaður
  • Sveinn Kristján Rúnarssonyfirlögregluþjónn

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1399 eindir í 81 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 75 málsgreinar eða 92,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,54.