Dregur úr skjálftavirkni eftir öflugan skjálfta í gærkvöldi
Ritstjórn DV
2025-04-04 07:20
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hélt áfram í nótt en hefur farið minnkandi frá fyrri dögum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.
Í henni segir að virknin sé nokkuð jafndreifð um kvikuganginn, frá Stóra Skógfelli í suðri og norður fyrir Keili. Dýpi skjálfta er enn þá nokkuð stöðugt, eða á milli 4 og 6 kílómetrar.
Um klukkan 17:30 í gær, 3. apríl, hófst kröftug hrina gikkskjálfta við Trölladyngju norðvestan við Kleifarvatn. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,9 að stærð rétt fyrir klukkan 23 en alls mældust 5 skjálftar yfir 3 að stærð síðan hrinan hófst klukkan hálf sex.
Fjölmargar tilkynningar bárust Veðurstofunni um að skjálftarnir hefðu fundist í byggð. Eftir miðnætti hefur hægt og bítandi dregið úr fjölda gikkskjálfta á svæðinu.
Nafnalisti
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 128 eindir í 8 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,63.