Hamingja dvínandi þótt Ís­land berjist um topp­sæti

Anna Gunndís Guðmundsdóttir

2025-03-20 13:47

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Rannsókn bendir til þess hrapi niður lista hamingjusömustu þjóða í heimi fylgir mikil aukning í kostnaði við heilbrigðiskerfið. Ísland deilir öðru sæti listans með Dönum en Finnar toppa listann. Auðveld leið til félagslegra tengsla og áhrif á eigin líf skipta þar sköpum.

Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt 20. mars sem Alþjóðlega hamingjudaginn. Af því tilefni standa embætti landlæknis, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntun fyrir málþingi í hátíðarsal kl. 1316.

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Lýðheilsu hjá landlæknisembættinu og sérfræðingur í hamingjurannsóknum, segir lykilinn hamingju Íslendinga meðal annars hversu auðvelt við eigum með rækta félagsleg tengsl og einnig hvernig við getum haft áhrif á okkar á eigið líf. Hún verður ásamt Höllu Tómasdóttur með arinspjall á málþinginu um hamingju, samkennd og Riddara kærleikans.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar ræddi Dóra um málþingið og nýútkoma alþjóðlega hamingjuskýrslu á vegum stofnunar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun en þar deilir Ísland 23. sætinu með Danmörku þó finna megi niðursveiflu í ákveðnum þáttum.

Við höfum tekið þessa hefð halda Alþjóðlega hamingjudaginn hátíðlegan með málþingi, þarna munum við fara yfir hvað það er sem hefur áhrif á hamingju og hvað skipti máli. Við erum svo heppin hafa forseta Íslands með okkur sem ætlar líka fara í spjall um samkennd og kærleika og riddara kærleikans, segir Dóra Guðrún.

Við erum sjá það hamingja Íslendinga hefur farið aðeins dvínandi þó við séum skora hátt í alþjóðlegum samanburði. Við erum núna í 2.3. sæti með Danmörku en Vesturlönd eru engu að síður dvína í hamingju ef við getum sagt svo helsta orsökin fyrir því er skortur á félagslegum tengslum.

Þau séu afar mikilvæg.

Það er svona þáttur sem spáir mest fyrir um hamingju. Þannig við erum svolítið skoða hvernig getum við eflt umræðu um þetta í samfélaginu. Hvernig getum við gefið meira af okkur, tekið meira þátt í samfélaginu og þar eru svona riddarar kærleikans líka svona nálgun sem getur hjálpað til tengja okur saman, sjá það jákvæða og lyfta því upp. Láta gott af okkur leiða. Sem mun veita okkur meiri hamingju.

Niðursveiflu hamingju í vestrænum samfélögum megi helst rekja til unga fólks.

Fyrsta og mest áberanda skýringin er aukinn einmanaleiki og skortur á félagslegum tenglsum og þess vegna erum við leggja þessa áherslu á mikilvægi félagslegra tengsla, samkennd og kærleika á málþinginu í dag.

Ísland vermi eitt toppsæta listans megi rekja til þess Íslendingar eigi auðvelt með rækta félagsleg tengsl.

Við erum lítið samfélag og það er auðvelt fyrir okkur vera í sambandi við fólk sem okkur langar vera í sambandi við. Það eru ekki fjarlægðir allavega sem koma í veg fyrir það. Við erum friðsamasta land í heimi, það er hátt traust hérna. Það kemur líka fram þarna við skorum hátt í því geta haft áhrif og eitthvað segja um okkar eigið líf. Hér geta langflestir sem vilja farið í nám, það er ekki fyrir fáa útvalda, við erum ekki með þannig gjöld það algjörlega hindrandi. Við erum með styrktarkerfi og við erum með velferðarsamfélag sem styður við þá sem minna mega sín og við þurfum líka styrkja það enn frekar. Við höfum alla burði til þess geta búið öllum gott líf og það skiptir máli í sjálfu sér er það mikilvægast allir geti eignast hamingjuríkt og gott líf.

Þá bendir Dóra á nýlega breska rannsókn sem bendir til þess þegar þjóðir fari falla niður um sæti á listanum yfir hamingjusömustu þjóðirnar aukist kostnaður heilbrigðsikerfisins gríðarlega.

Nafnalisti

  • Dóra Guðrún Guðmundsdóttirsviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis
  • Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 639 eindir í 29 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 25 málsgreinar eða 86,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.