Stjórnmál

„Ásthildur Lóa á allan minn hug núna“

Ritstjórn mbl.is

2025-03-21 23:35

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland kveðst harmi slegin og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra, eigi allan hennar hug. Inga segir það Ásthildar meta hvort hún haldi áfram á þingi.

Ég er í rauninni harmi slegin. Ásthildur Lóa á allan minn hug núna og ég sendi henni kærleikskveðjur. Þetta er mannlegur harmleikur sem hér er um ræða, sagði Inga Sæland á blaðamannafundi fyrr í dag.

Eftir hún sagði Ásthildi eiga allan hennar hug var hún spurð: En barnsfaðirinn?

Hún svaraði því ekki.

Ásthildur sagðist myndu stíga úr stóli í gær eftir greint var frá því hún hefði haft samræði við 15 ára dreng þegar hún var 22 ára gömul.

Ásthildar meta hvort hún haldi áfram á þingi

Við fengum upplifa hvernig við fáum sjá einn einstakling mulinn mélinu smærra, sagði Inga um atburðarásina í gær og í dag.

Inga var spurð hvort Ásthildi væri stætt sitja áfram á þingi í kjölfar málsins. Inga tók þá fram Ásthildur væri oddviti Suðurkjördæmis og hefði með því fengið tvímælalaust traust kjósenda.

Ekki ætla ég fara stíga inn í það heldur er það Ásthildar Lóu meta það sjálf, það er ekki ríkisstjórnarinnar. Við vorum ekki þau sem greiddum henni öll þessi atkvæði en við greiddum henni fullt traust, sagði Inga.

Hún sagði Ásthildi vera leiðtoga sem hefði verið frábær barna- og menntamálaráðherra.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 250 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 86,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.