„Frelsisdagur“ Trump í dag - gæti hrundið af stað alþjóðlegu viðskiptastríði

AFP

2025-04-02 10:50

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnir í dag umfangsmikla nýja tolla sem hann kallar Frelsisdags-aðgerð. Hann heldur heiminum enn í óvissu um umfangið fram á síðustu stundu, en óttast er aðgerðirnar gætu hrundið af stað alþjóðlegu viðskiptastríði. Trump hefur haldið því fram tollarnir muni koma í veg fyrir Bandaríkin séu rænd og fleyta bandarískum iðnaði inn í nýtt gullaldarskeið.

Forsetinn kynnir aðgerðirnar í Hvíta húsinu klukkan 16 staðartímaeftir markaðir á Wall Street lokaeða klukkan átta í kvöld íslenskum tíma. Þótt Trump fullyrði hann hafi tekið ákvörðun um gagnkvæma tolla á lönd sem hafi skaðað Bandaríkin, viðurkennir Hvíta húsið hann enn klára útfærslur, minna en sólarhring fyrir kynningu, því er AFP greinir frá.

Repúblikaninn og milljarðamæringurinn hefur lengi haft sterkar skoðanir á tollum og telur þá lausn á viðskiptahalla Bandaríkjanna, hvort sem um er ræða bandamenn eða andstæðinga.

Gagnrýnendur segja hins vegar bandarískir neytendur muni bera meginþungann þegar innflytjendur á vörum hækka verð, og tollarnir gætu aukið líkur á efnahagslægð bæði innan Bandaríkjanna og utan.

Órói hefur verið á alþjóðlegum mörkuðum í aðdraganda þessa, en lönd sem líkleg eru til verða fyrir högginu hafa kallað eftir viðræðum, á meðan þau undirbúa gagnaðgerðir.

Sagðist ætla vera ljúfur

Aðgerðin undirstrikar einnig vaxandi gjá milli Bandaríkjanna undir stjórn Trump og margra nánustu bandamanna þeirraekki aðeins í viðskiptum, heldur líka í öryggis- og varnarmálum. Trump heldur spilunum enn þétt sér. Hann hefur hins vegar talað um aðgerðirnar í nokkrar vikur og gaf upphaflega í skyn tollarnir myndu einfaldlega samsvara þeim sem aðrar þjóðir leggja á.

Á mánudag sagði hann einungis hann ætlaði vera mjög ljúfur án þess skýra það frekar. Bandarískir miðlar greindu hins vegar frá því Trump væri velta fyrir sér 20% tollum sem gilti fyrir öll lönd en einnig skoða þriðja kost þar sem sum ríki fengju sérmeðferð.

Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði í gær Trump væri á ráðgjafarfundi, daginn fyrir tilkynninguna, til fullkomna hana svo þetta verði fullkominn samningur. Tollarnir munu taka gildi strax eftir kynninguna í dag, bætti hún við-og útilokar þar með frekari viðræður við önnur ríki áður en aðgerðir taka gildi.

Trump hefur áður dregið til baka tollaaðgerðir á síðustu stundu, einkum gagnvart bandalagsríkjum eins og Kanada og Mexíkó. Þrátt fyrir það valda áform hans vaxandi ótta um víðtækt viðskiptastríð sem gæti hækkað verð og valdið röskunum á mörkuðum um allan heim.

ESB og Kanada munu svara fyrir sig

Evrópusambandið og Kanada eru meðal þeirra sem hafa lýst því yfir þau muni svara fyrir sig. Við munum bregðast af yfirvegun, til verja hagsmuni Kanada, sagði kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney í gær.

Evrópusambandiðsem Trump hefur sakað um reyna fokka í Bandaríkjunumgaf út á þriðjudag enn væri vonast eftir samkomulagi. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ræddi við Trump um árangursríkar viðræður um fríverslunarsamning við Bandaríkin. Víetnam tilkynnti í gær þar yrðu tollar lækkaðir á fjölda vara til koma til móts við Trump.

Á meðan eru önnur útflutningslönd mynda bandalög til bregðast við áformum Washington, þar sem Kína, Japan og Suður-Kórea hafa hraðað viðræðum um fríverslunarsamning. Mexíkó lækkaði hagvaxtarspá sína fyrir árið 2025 úr 2-3 prósentum niður í 1,5-2,3 prósent, með vísan til spennu við stærsta viðskiptalönd sitt, Bandaríkin.

Gæti skapað enn meiri óvissu

Þessi mikla óvissa um hvað Trump hyggst gera hefur aukið óróa á fjármálamörkuðum. Hagfræðingateymi HSBC, undir forystu Max Kettner, varaði við því tilkynningin í dag um tollana myndi ekki binda enda á óvissuna

Við teljum möguleikarnir séu jafnvel meiri á 2. apríl markist af enn meiri óvissuog þar með langvarandi veikleika í helstu hagvísum, sögðu þau.

Trump hefur notað tolla sem vopn í utanríkisstefnu allt frá sínu fyrra forsetatímabili. Hann fullyrðir tollarnir muni endurvekja veikburða framleiðslugetu Bandaríkjanna og segir fyrirtækjum þau geti forðast tolla með því flytja starfsemi sína til Bandaríkjanna.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Hvíta húsiðauglýsingastofa
  • Karoline Leavitttalskona Donalds Trump
  • Keir Starmerleiðtogi Verkamannaflokksins
  • Mark Carneybankastjóri Englandsbanka
  • Max Kettner
  • Suður-Kóreatalið eitt af sigurstranglegustu liðum mótsins
  • Wall Streetkvikmynd

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 721 eind í 32 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.