Stjórnmál

Þórdís Kolbrún: Ekki að reyna að búa til nýjan Sjálfstæðisflokk – bara minna á fyrir hvað hann hefur alltaf staðið

Eyjan

2025-03-07 16:38

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi vakti sérstaka athygli kveðjuræða Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem lét af embætti varaformanns á fundinum. Í máli sínu talaði hún tæpitungulaust um þá breytingu sem orðið hefur á stefnum Bandaríkjastjórnar í utanríkismálum og þær hættur sem stefnubreyting hefur í för með sér fyrir m.a. Ísland. Var hún eini forystumaður flokksins sem vék máli sínu þeim miklu og ótrúlegu breytingum sem eru verða á heimsmyndinniheimsskipaninniþessa dagana undir stjórn Donalds Trump. Þórdís Kolbrún er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt hlusta á Spotify.

Orð mín gagnvart núverandi stjórnvöldum í Bandaríkjunum voru auðvitað mjög stór. Ég ætlaði koma inn á það en ég breytti þeim kafla bara þarna morgni, ákvað það daginn áður eftir hinn fræga, ömurlega blaðamannafund á milli Trump og Selenskí og raunar annarra, sem sagt varaforsetans og Rubio sat þarna líka

Það er ótrúlegt. Við sitjum hér og tölum saman á föstudegi. Það er bara vika síðan þessi fundur átti sér stað. Manni finnst einhvern veginn eins og staðan í alþjóðastjórnmálum hafi gjörbreyst

Hún hefur í raun gert það bara á undanförnum vikum og ég tók auðvitað þar fram og nefndi sérstaklega núverandi stjórnvöld. Mér finnst mikilvægt við höldum því til haga vegna þess Bandaríkin allan þennan tíma og bandaríska þjóðin, þrátt fyrir hafa kosið núverandi forseta, þá hef ég trú á Bandaríkjunum og bandarísku þjóðinni. , segir Þórdís Kolbrún.

Hún heldur áfram. Síðan alveg segja: Er maður breyta um skoðun eða er maður bara veruleikatengdur? Ég hef aldrei upplifað eins hraðar breytingar á því hvernig ég horfi á heiminn eins og ég hef gert undanfarnar vikur. En manneskjan á það til, alla jafna, ofmeta svona breytingar og áhrif til skemmri tíma en vanmeta mjög til lengri tíma. Þess vegna var ég mjög afdráttarlaus og skýr allt frá því allsherjarinnrás Rússlands varð í Úkraínu vegna þess manneskja í minni stöðu, sem þá var utanríkisráðherra lýðveldisins, getur ekki leyft sér ofmeta áhrif til skemmri tíma og vanmeta þau til lengri tíma.

Þórdís Kolbrún segist hafa áttað sig vel á því, eins og fram hafi komið í ræðu hennar á landsfundinum um síðustu helgi, það yrði áskorun koma því til leiðar bæði innan Sjálfstæðisflokksins og meðal þjóðarinnar. En þú getur ekki bara sleppt því fyrir vikið. Ég hef alveg fundið fyrir þvíþað var ekkert ofboðslega virk hlustun til byrja með og fólki fannst þettalíka í mínum flokkifannst þetta bara óþarfi: Af hverju ertu skipta þér af þessu, erum við ekki bara hér selja fisk? En þetta hangir bara allt saman. Þannig var mér bæði létt og ég var ótrúlega þakklát fyrir gríðarleg viðbrögð við þessari ræðu inni á landsfundi sem segir manni þetta DNA Sjálfstæðisflokksinsþað er þarnaog ástæðan fyrir því ég t.a.m. vitna svolítið oft í Bjarna Benediktsson eldri, það er í raun til þess tengja það ég er ekki berjast fyrir því búa til nýjan Sjálfstæðisflokk. Ég er bara minna á það fyrir hvað Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið frá því hann var stofnaður.

Nafnalisti

  • Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Ólafur Arnarsonfyrrverandi formaður Neytendasamtakanna
  • Rubiosá eini af frambjóðendum repúblikanaflokksins sem fór
  • SelenskíÚkraínuforseti
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttirnýsköpunarráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 577 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.