Ágengt þjófalið á ferðamannastöðum

Ritstjórn mbl.is

2025-03-29 07:10

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þetta hefur verið talsvert vandamál hjá okkur undanfarið og töluvert um tilkynningar um svona mál, segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við Morgunblaðið, spurður um ágang vasaþjófa í umdæminu að undanförnu.

Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá mikilli ásókn vasaþjófa á Þingvöllum sem stunda þar iðju sína með skipulögðum hætti. Ágangur vasaþjófa hefur verið talsverður á fleiri ferðamannastöðum á Suðurlandi, svo sem við Gullfoss og Geysi, og staðfestir Þorsteinn svo .

Þá hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varað við þjófum sem hafa verið á ferðinni á miðborgarsvæðinu undanfarna daga. Þeir eru sagðir erlendir ríkisborgarar og herja á ferðamenn og hafa borist tilkynningar um slík mál við Hallgrímskirkju og í nágrenni hennar. Segir lögreglan þjófarnir séu gjarnan saman tveir eða fleiri og steli úr vösum, töskum og bakpokum fólks, bæði á almannafæri og gististöðum. Sjálfir séu þeir klæddir eins og ferðamenn og gjarnan með bakpoka meðferðis.

Dreifa athygli ferðamanna

Segir lögreglan talið þetta séu sömu þjófar og hafi nýlega verið á þekktum ferðamannastöðum á Suðurlandi og stolið þar með sama hætti. Þar dreifðu þeir t.d. athygli ferðamanna með því bjóðast til taka af þeim myndir, en meðan á því stóð létu þjófarnir greipar sópa.

Nánar lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag.

Nafnalisti

  • Þorsteinn M. Kristinssonaðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 233 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.