Tollastríð Kanada og Kína harðnar

Ritstjórn mbl.is

2025-03-10 10:19

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stjórnvöld í Kína tilkynntu á laugardag nýir refsitollar yrðu lagðir á kanadíska matvöru frá og með 20. mars.

Kínverska viðskiptaráðuneytið segir þessum nýju tollum ætlað hefna fyrir 100% toll á kínverska rafbíla og 25% toll á kínverskt stál og ál sem stjórnvöld í Kanada kynntu til sögunnar seint á síðasta ári. Verður lagður 100% tollur á kanadíska repjuolíu og 25% tollur á kanadískt fiskmeti og svínaafurðir. Í venjulegu árferði flytur Kanada út til Kína repjuolíu fyrir jafnvirði u.þ.b. milljarðs bandaríkjadala en útflutningsverðmæti fisk- og svínaafurða til Kína nemur 1,6 milljörðum dala árlega.

Greinendur benda á með þessum inngripum vilji ráðamenn í Peking senda kollegum sínum í Ottawa skýr skilaboð um það borgi sig ekki fyrir Kanada fylgja Bandaríkjunum máli í tollastríði við Kína. Donald Trump lagði á dögunum 20% viðbótartoll á kínverskan varning til refsa kínverskum stjórnvöldum fyrir stemma ekki nægilega vel stigu gegn innflæði kínversks fentanýls til Bandaríkjanna. Hefur ríkisstjórn Trumps látið því liggja við ráðamenn í Kanada fyrirhugaðir 25% tollar á kanadískan varning kunni verða dregnir til baka ef Kanada fæst til vera samstíga Bandaríkjunum í fentanýl-refsitollum á Kína.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 192 eindir í 7 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.