Stjórnmál

„Mér finnst ekki mitt að svara fyrir hvað hún gerir“

Vésteinn Örn Pétursson

2025-03-10 20:55

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Forseti borgarstjórnar segir það ekki sitt svara fyrir það hvort borgarstjóri sitji áfram sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, en borgarstjóri fær fyrir formennskuna tæpar 900 þúsund krónur á mánuði. Skoða þurfi launamun milli hæst og lægst launuðu starfsmanna borgarinnar, en það verði ekki gert á þessu kjörtímabili.

Nokkur umræða hefur spunnist um laun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra að undanförnu. Heiða er með um 3,8 milljónir í mánaðarlaun. Þar af eru 870 þúsund krónur á mánuði fyrir formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga,. Heiða hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hún muni veita stjórn sambandsins áfram formennsku eftir hafa tekið við embætti borgarstjóra.

Verkalýðsforkólfar hafa gagnrýnt laun Heiðu. Þeirra á meðal er Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann skefur ekki af hlutunum og segir helvíti vel í lagt borgarstjóri með tæpar fjórar milljónir á mánuði. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sagt brjálæðislegt sjá laun borgarstjóra, sem séu sexföld á við laun launalægstu kvenna sem starfi hjá borginni.

Á sömu launum frá borginni og Einar

Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Sósíalistaflokksins, ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fyrr í dag. Þar benti hún á laun fyrir formennsku í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga væru ekki ákveðin á vettvangi borgarinnar.

Í raun er borgarstjóri þá núna með sömu laun og fráfarandi borgarstjóri, sagði Sanna, og vísaði þar til Einars Þorsteinssonar.

Það ekkert leyndarmál hún og Sósíalistar hafi haft skoðanir á launamálum kjörinna fulltrúa í gegnum tíðina, og talað fyrir heildstæðri skoðun á launamálum hjá hinu opinbera, og á stórum vinnustöðum á borð við Reykjavík.

Hvort það hægt setja fram einhver viðmið um hvað teljist eðlilegur munur milli hæstu og lægstu launa. Það er eitthvað sem er ekki fara gerast núna á þeim fjórtán mánuðum sem eftir eru af kjörtímabilinu. Þetta er auðvitað bara verkefni Sósíalista og langtímaverkefni, en ég tel það þurfi fara fram umræða um slíkt, segir Sanna.

Hún segir það hafa verið sína upplifun, þegar hún tók sæti í borgarstjórn, launin væru . Því hafi hún ákveðið gefa hundrað þúsund krónur af launum sínum í hverjum mánuði.

Mér finnst eðlilegt endurskoða það í ljósi launabreytinga sem eru koma, sagði Sanna.

Heiða verði meta framhaldið

Sanna var spurð hvort borgarstjórastarfið væri ekki full vinna, en svaraði því til hún hefði aldrei verið borgarstjóri.

Það verður bara vera borgarstjóra meta hvernig næstu skref verða.

En ef hann sinnir [öðrum] störfum á þeim tíma sem hann á vera í vinnu hjá borginni?

Ég myndi halda, við erum í raun alltaf í vinnunni. Það er bara þannig, allavega svo ég tali fyrir mitt leyti. En svo veit ég ekki hvernig formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og borgarstjóri sér fyrir sér halda áfram. Það verður bara vera hennar útskýra það og svara fyrir það. Ég hef ekki einu sinni setið í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þannig ég veit ekki einu sinni hvernig vinnan fer þar fram.

Vill ekki sjá Sjálfstæðismenn í meirihluta

Sanna var einnig spurð hvað hvort hún hefði skoðun á því hvort Heiða ætti sinna öðrum störfum, samhliða setu á borgarstjórnarstóli.

Eins og ég segi, mér finnst ekki mitt svara fyrir hvað hún gerir. Mér finnst það ekki, sagði Sanna.

Hún sagði þó athyglisvert skoða stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og velta fyrir sér hvernig stjórn yrði samsett, færi svo Heiða færi úr stjórn.

Af því þetta eru allt fulltrúar frá ólíkum flokkum. Persónulega myndi ég ekki vilja sjá meirihluta Sjálfstæðismanna þar, og velti fyrir mér hvort það inni í myndinni, ef það verða breytingar á stjórninni.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu sambandsins sitja tíu í stjórninni, þar af fimm á vegum Sjálfstæðisflokksins. Þó er eitt sæti autt, í Suðvesturkjördæmi. Það er vegna þess Guðmundur Ari Sigurjónsson, áður bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi en alþingismaður, sagði sig úr stjórninni þegar hann náði kjöri á þing.

Viðtalið við Sönnu heyra í heild sinni í spilaranum hér ofan.

Nafnalisti

  • Einartrommugimp
  • Einar Þorsteinssonoddviti
  • Guðmundur Ari Sigurjónssonbæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Magdalena Mörtudóttirborgarfulltrúi
  • Reykjavík síðdegis á Bylgjunniútvarpsþáttur
  • Sólveig Anna Jónsdóttirfyrrverandi formaður Eflingar
  • Vilhjálmur Birgissonformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 732 eindir í 41 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 39 málsgreinar eða 95,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.