Stærri útgerðir skilað góðum rekstri

Ritstjórn mbl.is

2025-03-25 14:20

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Við gerð frumvarps Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um veiðigjald var tekið sérstakt tillit til smærri og meðalstóra útgerða með hærra frítekjumarki.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var á kynningarfundi um frumvarpið spurður hversu mikið frítekjumarkið verði hækkað.

Ráðherra sagði það verða hækkað mjög verulega en einnig verði gerðar kerfisbreytingar á því með þrepaskiptingu. Smáatriðin krefjist frekari útskýringa.

Breið pólitísk sátt

Blaðamaður spurði Daða þá hvaða rök væru fyrir því sumir verði undanþegnir því borga fyrir afnot af auðlind þjóðarinnar en aðrir ekki.

Það er mjög góð spurning, sagði Daði og benti á á Íslandi hafi verið breið pólitísk sátt um taka tillit til stærðar útgerðarfyrirtækja í þessu tilliti. Í hina röndina tók ráðherra undir með blaðamanni með því segja góði árangur í rekstri sem hefur náðst í greininni hafi fyrst og fremst náðst hjá stærri útgerðarfyrirtækjum.

Kjarasamningar eru pragmatísk ferli

Við gerum upp við sjómenn hér á grundvelli skiptaprósentu. Ekki er nákvæmlega sama launakerfi hér og í Noregi og aðkoma veiðanna því allt öðruvísi. Ef ríkið tekur meira í sinn hlut breytist afkoma veiðanna í takti við það, ekki satt?

Við erum ekki breyta reglunum um verðlagsstofu skiptaverðs. Það eru bara útreikningarnir á veiðigjaldinu sem eru breytast þannig með hvaða hætti kjarasamningar sjómanna við útgerðina þróast verður einfaldlega koma í ljós.

Kjarasamningar eru pragmatísk ferli og ég ætla ekki reyna spá fyrir um það hvernig þeir muni þróast.

Þú viðurkennir þá þetta gæti haft áhrif á kjarasamninga sjómanna?

Eins og ég segi, ég held hvorki ég þú vitum hvernig kjarasamningar sjómanna eiga eftir þróast.

Nafnalisti

  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Hanna KatrínFriðriksson

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 296 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 94,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.