Stjórnmál

Meirihlutinn fylgir fordæmi ríkisstjórnarinnar

Ritstjórn mbl.is

2025-04-02 21:18

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Samþykkt var á fundi borgarstjórnar í gær leita til íbúa og starfsfólks borgarinnar til tillögur og ábendingar um hvernig nýta megi fjármuni og tíma starfsfólks betur á samráðsvef Reykjavíkurborgar.

Er þetta sams konar leið og ríkisstjórn fór í upphafi kjörtímabilsins þar sem óskað var eftir hagræðingartillögum frá almenningi. Í kjölfarið kynnti sérstakur hagræðingarhópur stjórnvalda sextíu hagræðingartillögur sem eiga spara ríkissjóði 71 milljarð króna á árunum 2026 til 2030.

Íbúum borgarinnar býðst senda inn tillögur á samráðsgátt borgarinnar til 30. apríl. Í kjölfarið mun sérstakur vinnuhópur á vegum borgarinnar fara yfir innsend álit og draga saman helstu niðurstöður sem verða svo kynntar í fagráðum, borgarráði og borgarstjórn.

Niðurstöðurnar verða m.a. nýttar til móta starfsemi borgarinnar þar sem við á, við gerð fjárhagsáætlunar og útfærslu verkefna sem gætu stuðlað því nýta bæði tíma og fjármagn í fjölbreyttri starfsemi borgarinnar, segir í samráðsgáttinni.

Leggja til fækkun borgarfulltrúa og hætt fjárstuðningi við GR

Þegar þetta er skrifað hafa 29 einstaklingar sent inn tillögur í samráðsgáttina. Hægt er senda inn tillögur undir nafnleynd en þær umsagnir er ekki hægt lesa.

Á meðal tillagna sem hafa borist er hætt styrkja Golfklúbb Reykjavíkur (GR) með , samningar borgarinnar við hugbúnaðarfyrirtæki verði endurskoðaðir, borgarfulltrúum verði fækkað í 15, laun borgarstjóra verði lækkuð í eina og hálfa milljón á mánuði og borgin hætti útvistun þjónustu á borð við ræstingar og rekstri á götulýsingu.

Tillagan var samþykkt af öllum borgarfulltrúum meirihlutaflokkanna, Samfylkingar, Vinstri grænna, Sósíalista, Flokks fólksins og Pírata, auk fulltrúa Framsóknar og Viðreisnar.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.

Borgarfulltrúi vill selja fasteignir borgarinnar

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar, er ein þeirra sem hafa sent inn tillögu í gáttina. Leggur hún meðal annars til borgin selji fasteignir sem borgin þarf ekki eiga og tekur Iðnó til dæmis.

Þá leggur hún einnig til sorphirða borgarinnar verði boðin út, malbikunarstöðin Höfði verði seld eða hlutir félagsins verði seldir til nágrannasveitarfélaga. Auk þess sem hún leggur til tvö ráð borgarinnar, stafræna ráðið og mannréttindaráðið, verði lögð af og því fundinn annar staður innan fagráða borgarinnar.

Nafnalisti

  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttirfráfarandi formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 379 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 94,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.