Nú þarf Versló að bregðast við

Pétur Orri Pétursson

2025-03-11 07:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Árið 1905 komu reykvískir kaupmenn Verzlunarskólanum á fót til sinna aðkallandi þörf á sérmenntuðu starfsfólki í ört vaxandi viðskiptalífi. Skólinn óx með tíð og tíma og naut þar öflugs stuðnings Verzlunarráðs Íslands (sem heitir Viðskiptaráð). Námið lengdist, skólinn fékk leyfi til brautskrá stúdenta, kom á fót stærðfræðideild og varð á níunda áratugnum leiðandi í forritunar- og tölvukennslu, en innan skólans var komið á laggirnar Tölvuháskólanum sem varð grunnurinn Háskólanum í Reykjavík. Skólinn er enn í hópi fremstu framhaldsskóla hérlendis og fylgir ströngum viðmiðum sem tryggja námið ekki bara til undirbúnings háskólanámi heldur fylgi einnig kröfum atvinnulífsins hverju sinni.

Augljósar lausnir krefjast hugrekkis

Augljós fylgni er milli afnáms samræmdra prófa annarsvegar og hnignandi námsárangursogeinkunnaverðbólgu hins vegar. Þetta hefur legið fyrir lengi en ánægjulegt loks hafi verið dregið fram í dagsljósið hvers konar ójafnræði nemendur grunnskóla búa við og hversu lítill árangur er af starfi íslenskra grunnskóla. Bent hefur verið á leiðir til úrbóta. Þar er efst á blaði upptaka samræmdra prófa líkt og tíðkast á hinum Norðurlöndunum en fátt bendir til þess nýskipaður menntamálaráðherra muni rétta kúrsinn í þessum efnum.

Viðskiptaráð Íslands hefur í nýlegum úttektum sínum og álitsgerðum dregið fram alvarlegan vanda skólakerfisins en ráðið er enn bakhjarl Verzlunarskólans. Tillögur Viðskiptaráðs hafa sætt harðri andstöðu kennaraforystunnar og stjórnvalda menntamála. Fátt bendir til þess samræmd próf verði innleidd á nýjan leik og því hvet ég fulltrúaráð Verzlunarskólans, skólanefnd og stjórnendur skólans taka upp inntökupróf.

Með því aðstígaþetta skrefyrði tryggt allir umsækjendur um skólavist yrðu metnir ájafnræðisgrundvelli, óháð mismunandi einkunnagjöf grunnskólanna. Inntökupróf myndu ekki eingöngu skapa sanngjarnt valviðinnrituní skólannheldur einnig senda skýr skilaboðþess efnis raunveruleg þekking skipti mestu málien ekki geðþótti einstakra kennara grunnskólanna eins og oft vill verða við það óljósa námsmat sem er við lýði. Með inntökuprófi yrðu grunnskólarnir hvattir til stuðla góðri og innihaldsríkri menntun. Inntökupróf ykju líkurnar á raunverulegum námsárangri nemenda og tryggðu Verzlunarskólinn gæti tekið inn nemendur á grundvelli jafnræðis og kunnáttu.

Samræmdur mælikvarði án samræmis?

er til umræðu svokallaður nýr matsferill á námi í grunnskóla en mesta athygli hefur vakið skortur á gagnsæi en ekki stendur til birta niðurstöður hans opinberlega. Skólar eiga hafa val um hvort þeir nýti sér matsferilinn eða ekki, og afar lítill hluti hans verður skylda. Í matsferlinum er talað um samræmingu. Það er bara upp á punt því þarna er ekki finna neina samræmingu eins hún er almennt skilgreind. Nemendum verður ekki gert skylt þreyta umrædd próf og óheimilt verður nota niðurstöðurnar við innritun nemenda í framhaldsskóla. Til hvers er námsmatið eiginlega ef óheimilt verður nota það? Er staða grunnskólans ef til vill orðin svo slæm stjórnvöldum er lífsins ómögulegt horfast í augu við það og ætla því fela vandann enn frekar? Er þetta ekki algjör uppgjöf kerfisins?

Það skýtur skökku við Ásthildur Lóa Þórsdóttir menntamálaráðherra hefur í ræðu og riti lagt mikla áherslu á sanngirni og jafnræði í skólakerfinu. En ef ekki á vera til staðar eiginlegur mælikvarði á árangur námsins er nemendum mismunað. Áfram eiga framtíðarmöguleikar nemendanna því ekki ráðast af þeirra eigin getu og vinnusemi heldur því hvernig þeirra skóli veitir einkunnir, sem í ofanálag eru á óskiljanlegum kvarða (í bókstöfum og litum) í stað þess vera gefnar á skalanum 0 og upp í 10, sem er eitthvað sem allir skilja. Við erum skylduð til 10 ára grunnskólanáms og þegar meta á hvernig til hefur tekist er jafnræðisreglan þverbrotin, ekkert samræmi er í neinu mati.

Tími kominn til aðgerða

Verzlunarskólinn hefur í áranna rás sýnt sjálfstæði í stefnumótun og jafnvel virt vettugi heimskulegar hugmyndir yfirvalda. Dæmi um það nefna þegar skólinn neitaði verða hverfisskóli á þeim tíma þegar nemendum var gert skylt sækja eingöngu skóla í sínu hverfi. Ég myndi vilja Verzlunarskólinn tæki enn á ný af skarið, sýndi sjálfstæði og djörfung og tæki upp inntökupróf. Það myndi staðfesta skólinn ætlaði sér áfram vera í fararbroddi íslenskra skóla, verða hreyfiafl til umbóta.

Mér koma til hugar í þessu sambandi orð indversku sjálfstæðishetjunnar Mahatma Ghandi: Vertu breytingin sem þú vilt sjá í heiminum. Þau minna okkur á ekki er nóg benda ávandamálin, það verður taka af skarið og leita lausna, með eða án stuðnings stjórnvalda. Þrátt fyrir frábæra umfjöllun um hnignun menntakerfis hérlendis undanfarna mánuði er það ekki nóg, það verður framkvæma. Fulltrúaráð Verzlunarskólans, skólanefnd og stjórnendur skólans: Boltinn er hjá ykkur!

Höfundur er nemandi við Verslunarskóla Íslands.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Mahatma Ghandiindversk sjálfstæðishetja
  • Viðskiptaráð Íslandsþrýstihópur helstu fyrirtækja á Íslandi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 801 eind í 39 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 32 málsgreinar eða 82,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.