Lækkanir á asískum mörkuðum eftir tollahækkanir Trump
Magnús Jochum Pálsson
2025-04-03 07:50
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Asíski markaðurinn lækkaði í kjölfar stórfelldra tollahækkana Bandaríkjanna í nótt. Markaðsvirði tæknirisanna sjö lækkaði um 760 milljarða dala og gull náði nýjum hæðum meðan olíuverð lækkaði um þrjú prósent. Evrópskum mörkuðum er spáð
Tæknigeirinn fann rækilega fyrir aðgerðum Trump sem setti þrjátíu prósent tolla á bæði Kína og Tævan. Álögur á kínverskan innflutning til Bandaríkjanna eru því orðnar 54 prósent.
Þá setti Trump 46 prósent toll á Víetnam, 26 prósent á Indland, 25 prósent á Suður-Kóreu, 24 prósent á Japan og tíu prósent á Ástralíu.
„Virkt skatthlutfall Bandaríkjanna á allan innflutning virðist vera það hæsta í meira en öld,“ sagði Ben Wiltshire, viðskiptasérfræðingur hjá fjárfestingarbankanum Citigroup.
Peningurinn losaður og settur í gull
Framvirk viðskipti með bréf Nasdaq féllu um fjögur prósent og markaðsvirði tæknirisanna (Apple, Microsoft, Amazon, Alphabet, Meta, Nvidia, and Tesla) sjö lækkaði um 760 milljarða dala (um 99 þúsund milljarðar króna).
Hlutabréf í Apple lækkuðu um tæplega sjö prósent en gullkálfur fyrirtækisins, iPhone-síminn, er framleiddur í Kína.
Framvirk viðskipti með S & P 500 féllu um 3,3 prósent, FTSE um 1,8 prósent, meðan framvirk viðskipti í bréfum evrópskra fyrirtækja féllu um nærri tvö prósent. Verð á gulli hækkaði á sama tíma skarpt og er í sögulegum hæðum en olía lækkaði um meira en þrjú prósent.
Nikkei-vísitalan féll um 3,9 prósent og hefur ekki verið lægri í átta mánuði. Bréf í nánast öllum 225 fyrirtækjunum féllu. Kospi-vísitalan í Suður-Kóreu féll um tvö prósent, VanEck Víetnam ETF-vísitalan féll um meira en átta prósent og áströlsk bréf féllu um tvö prósent.
Vænta efnahagslegrar lægðar
Bandaríkjadalur styrkti sig gegn flestum asískum myntum nema japanska jeninu. Búist er við að tollahækkunum Bandaríkjanna verði svarað í sömu mynt sem gæti leitt til mikilla verðhækkana.
„Tollskrártaxtarnir sem voru afhjúpaðir í morgun eru mun hærri en vænst var til. Ef það verður ekki samið skjótlega um lækkun þeirra munu væntingar eftir bandarískri efnahagslægð aukast gífurlega,“ sagði Tony Sycamore, greinandi hjá IG.
Útlitið hjá evrópskum mörkuðum er heldur ekki gott og féll kauphöll Lundúna þegar hún opnaði í morgun. FTSE 100-vísitalan féll um rúmlega 1,4 prósent.
Nafnalisti
- Alphabetmóðurfélag Google
- Amazonbandarískur netverslunarrisi
- Citigroupfjármálarisi
- FTSEvísitölufyrirtæki
- FTSE 100bresk hlutabréfavísitala
- IGíslenskur sjávarklasi
- Nasdaqbandarísk kauphöll
- Nvidiaörflöguframleiðandi
- Suður-Kóreunágrannaríki
- Tony Sycamore
- Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna
- Wiltshireeinmitt héraðið
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 353 eindir í 22 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 86,4%.
- Margræðnistuðull var 1,85.