Þekkir þú áhrifa­valdana í lífi barnsins þíns?

Daðey Albertsdóttir, Silja Björk Egilsdóttir og Skúli Bragi Geirdal skrifa

2025-04-03 07:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þættirnir Adolencence sem sýndir eru á Netflix hafa vakið mikla athygli. Foreldrar eru hugsi yfir þáttunum og jafnvel með kvíðahnút í maganum eftir áhorfið. Þættirnir fjalla um 13 ára dreng sem í upphafi þáttanna er handtekinn fyrir grun um hafa myrt skólasystur sína og fylgst er með því ferli sem fer í gang í kjölfarið. Þættirnir hafa hlotið verðskuldað lof enda afar vel leiknir og taka á efni sem snertir því miður veruleika okkar allra. Þar er m.a. snert á áföllum, tengslavanda, ofbeldi, eitraðri karlmennsku, samfélagsmiðlanotkun, hegðunarvanda barna og skólasamfélaginu. Áhorfið getur tekið á en er vel þess virði. Þú ert ekki eina foreldrið sem hefur áhyggjur af barninu þínu á netinu.

Það er flókið vera foreldri í dag. Við höfum stigið inn í veröld tækni sem fyrir okkur flestum virðist framandi og flókin. Þróunin er hröð, virknin ógagnsæ og samskiptin blönduð tjáknum (emojis) og skammstöfunum sem gerir veruleikann illskiljanlegan fyrir okkur sem eldri erum. Við gerum okkar besta til gæta öryggi þeirra þar þó það reynist okkur erfitt. Hvernig getum við gætt börnunum okkar í veruleika sem við skiljum verr en börnin sjálf?

Undanfarin ár hefur verið hávær umræða í þjóðfélaginu um snjallsíma og samfélagsmiðlanotkun barna og kemur fólki ekki alltaf saman um hvernig best stíga niður fæti í þessum efnum. Aldurstakmark samfélagsmiðla er 13 ára og því augljóst mál börn undir þeim aldri ættu ekki vera með sína eigin aðgangsreikninga á slíkum miðlum. 13 ára erum við ekki fullorðin, á þeim aldri erum við enn taka út mikilvægan þroska með því m.a. upplifa lífið og tilveruna á eigin skinni. Þegar við komumst í snertingu við efni sem við höfum ekki þroska til þess geta lagt rétt mat á þá getur það haft áhrif á hegðun. Reglur, rammi og eftirlit fullorðinna er eðlilegt meðan börnin eru taka út þennan mikilvæga þroska.

Börn og netmiðlar (2023)Fjölmiðlanefnd og Menntavísindastofnun Háskóla Íslands:

Helmingi fleiri stelpur en strákar hafa séð umræður um leiðir á netinu til grenna sig verulega.

Unglingsstúlkur eru mun líklegri en strákar til hafa séð auglýsingar um megrunarvörur, andlitsmeðferðir (t.d. bótox, fylliefni og nálastungur) og útlitsaðgerðir (t.d. brjóstastækkun, rassastækkun eða nefaðgerðir) en strákar.

32% drengja og 42% stúlkna í 8.-10 bek hafa séð hatursskilaboð sem beinast gegn einstaklingum eða hópum á netinu.

Þriðjungur nemenda í 8.10. bekk hefur séð umræður eða umfjöllun um leiðir til skaða sig líkamlega.

Skilaboðin koma ekki einungis gegnum auglýsingar heldur frá áhrifavöldum sem sumir hverjir draga upp óheilbrigða mynd af samfélaginu út frá sínum eigin skoðunum í von um áhorf, like og fjárhagslegan ávinning. Í ólgusjó upplýsinga á netinu þar sem við efumst stöðugt um sannleiksgildi upplýsinga getur sjarmerandi áhrifavaldur með einföld skilaboð virkað eins og ljós í myrkrinu. Þeir geta verið margir og mismunandi. Eitt dæmi er Andrew Tate sem einmitt er minnst á í þáttunum sem ungir drengir líta upp til þrátt fyrir ákærur um ofbeldi, kynferðisofbeldi og hatursorðræðu í garð kvenna.

Eins og höfundar þessarar greinar hafa tekið fram í sínum fyrri skrifum væri einföldun kenna eingöngu samfélagsmiðlanotkun um hrakandi geðheilsu barna og unglinga eða ofbeldi meðal ungmenna. Þar spilar margt inn í og eru samfélagsmiðlar bara einn hluti af stórri og flókinni mynd. Þar nefna aðra hluta sem gegna veigamiklu hlutverki líkt og breytt samfélagsmynd, fátækt, vanræksla, fordómar, kvenfyrirlitning og samskiptavandi sem mikilvægt er takast á við sem samfélag. En þó er ekki hægt horfa frá því samfélagsmiðlanotkun barna og unglinga er hluti stóru myndarinnar sem þarf skoða og vinna með. Þá sérstaklega þar sem ungmennin sjálf hafa nefnt þau hefðu viljað meiri fræðslu og jafnvel reglur um slík samskiptaforrit áður en þau fengu aðgengi þeim.

Við foreldrar þurfum vera meðvituð um þá áhrifavalda sem hafa aðgengi börnunum okkar. Myndum við fara með börnin okkar á fyrirlestra hjá einstaklingum sem ala á fordómum gagnvart hinsegin fólki eða ýta undir kvenfyrirlitningu og hatursorðræðu? Við erum nokkuð viss um fáir, ef einhverjir, foreldrar myndu gera það. Þó eru þessir áhrifavaldar með aðgengi börnunum okkar í gegnum samfélagsmiðla og oft án þess við höfum nokkra hugmynd um það.

En hvað getum við þá gert?

Það er í okkar hlutverki vera áhrifavaldar í lífi barnanna okkar. Fyrstu árin eru það helst við foreldrarnir sem börnin líta upp til og sjá ekki sólina fyrir. Eftir því sem börnin svo eldast fer félagahópurinn skipta meira máli og fara unglingarnir þá oft færa sig fjær foreldrunum, það er eðlilegur partur af þroska barna. Það sem skiptir máli varðandi áhrif á líðan og lífsánægju unglinga eru tengslin sem þau eiga við foreldra sína. Því er mikilvægt foreldrar leggi sig fram við vera í góðu sambandi við börnin sín, viti hvað þau eru gera og með hverjum þau eru. Einnig er jákvætt ef börnin okkar hafa fleiri fullorðna en bara foreldra sína sem þau treysta og geta leitað til. Þá er mikil forvörn í því þekkja vini barnanna sinna og foreldra þeirra.

Góð ráð fyrir foreldra til efla tengsl við börnin/unglingana sína:

Leggja áherslu á litlu hversdagslegu hlutina sem gerðir eru daglega. Til mynda borða saman máltíð í og næði, fara í göngutúr eða spila saman tölvuleik. Gefa sér tíma (þarf ekki vera langur, 15 mínútur er nóg) daglega með barninu í samveru þar sem ekkert áreiti er til staðar og barnið/unglingurinn stýrir hvað er gert.

Kynna sér áhugamál barnanna sinna og sýna áhugamálum þeirra áhuga. Þó við foreldrarnir höfum jafnvel lítinn áhuga á því er það í okkar hlutverki kynna okkur það sem barnið hefur áhuga á. Alveg eins og við mætum á fótboltaleiki eða æfingar hjá barninu þá getum við fengið horfa á eða jafnvel spila tölvuleiki með barninu okkar ef það hefur áhuga á tölvuleikjum. Hér gæti líka verið gott horfa með barninu á þættina eða áhrifavaldana sem það horfir á.

Gott er passa upp á eigin viðbrögð þegar börnin segja okkur eitthvað sem er erfitt heyra. Vertu forvitinn, notaðu virka hlustun og þakkaðu þeim fyrir treysta þér fyrir þessum upplýsingum. Við viljum þau komi til okkar þegar þau lenda í vandræðum og þá er mikilvægt við skömmum þau ekki eða bregðumst harkalega við þó við eigum stundum erfitt með halda í erfiðum aðstæðum.

Gott er forðast yfirheyra börnin þó okkur gruni eitthvað trufla þau. Mælt er með fara í göngutúr eða bíltúr þar sem auðveldara getur verið halda uppi samræðum og opna á möguleikann fyrir þau segja okkur frá erfiðum hlutum.

Skoðaðu eigin notkun á snjallsímum og samfélagsmiðlum. Foreldrar eru fyrirmyndir í lífi barna sinna og okkar hegðun gagnvart tækjunum verður hegðun sem þau koma til með tileinka sér. Leiðum með fordæmi, fylgjum reglum heimilisins sjálf, biðjum um leyfi áður en við deilum myndum og bjóðum fram aðstoð við leysa úr erfiðum stöðum sem geta komið upp á netinu.

Eigum samtal um miðlalæsihver er þetta, hvaðan kemur þetta, er þetta einum of ótrúlegt, hafa aðrir fréttamiðlar birt eitthvað um þetta, finnurður fyrir reiði eða er myndin ótrúverðug? Hvetjum börnin okkar til þess stoppa, hugsa og athuga sannleiksgildi upplýsinga og sýnum þeim hvernig þau geta leitað heimilda.

Like-in okkar, deilingar, það efni sem við stöldrum við til skoða o.fl. getur haft áhrif á það efni sem algóritminn sýnir okkur. Það getur verið auðvelt festast í bergmálshellum á netinu. Skoðum mál frá fleiri en einni hlið. Veljum sjálf efnið sem við skoðum og áhrifavaldana sem við hlustum á í staðinn fyrir láta algóritmann velja fyrir okkur.

Mikilvægt er búa til reglur fyrir allt heimilið sem snýr snjalltækjum og samfélagsmiðlum. Bara það eitt búa til þennan ramma saman sem fjölskylda getur skapað góðan grunn til þess eiga samtal um hlutverk tækni á heimilinu. Allir fjölskyldumeðlimir eiga vera með í skapa rammann og hann á gilda um alla meðlimi:

---Hvaða staðir og stundir ættu vera skjálausar?

---Hvernig viljum við hafa samverustundir fjölskyldunnar? Ætlum við horfa á mynd saman eða spila saman leik. Ætlum við vera í síma á meðan? Getum við gert eitthvað saman sem tengist ekki skjátíma?

---Ætlum við setja einhvern tímaramma?

---Hvaða ramma ætlum við setja um deilingu lykilorða, staðsetningar, myndum- og myndböndum af fjölskyldumeðlimum?

---Hvað getum við gert þegar við lendum í vandræðum á netinu?

Foreldrasamstaða skiptir lykilmáli þegar kemur samfélagsmiðlum. Mælt er með foreldrar komi sér saman um sameiginlegar reglur sem ganga yfir alla. Það er mun auðveldara standa við reglurnar ef þú veist fleiri eru sömu skoðunar og setja sömu reglur.

Frekari ráð finna á HeilsuveruSkjárinn og börnin

Höfundar þessarar greinar standa fyrir fræðslufundi 28. apríl kl. 20:00 þar sem farið verður dýpra í heim samfélagsmiðla og foreldrum veitt ráð hvernig þau geta stutt við börnin sín. Fundinum verður streymt á netinu, er opinn öllum og gjaldfrjáls. Upplýsingar um fundinn finna hér á Facebook og skráningu finna hér.

Daðey Albertsdóttir, móðir og sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barnaHH og Domus Mentis Geðheilsustöð.

Silja Björk Egilsdóttir er móðir og sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barnaHH og Seiglu sálfræði- og ráðgjafastofu.

Skúli Bragi Geirdal, faðir og sviðsstjóri SAFT-Netöryggismiðstöðvar Íslands.

Nafnalisti

  • Andrew Tateumdeildur áhrifavaldur
  • Daðey Albertsdóttirsálfræðingur
  • Domus Mentis Geðheilsustöð
  • Facebookbandarískur samfélagsmiðill
  • Geðheilsumiðstöðáður Þroska- og hegðunarstöð
  • HHHildur Hauksdóttir, fulltrúi SFS í stjórn Úrvinnslusjóðs
  • Silja Björk Egilsdóttirsálfræðingur
  • Skúli Bragi Geirdalverkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1699 eindir í 86 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 74 málsgreinar eða 86,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.