Menning og listir

Þessir fjórir leika Bítlana í nýjum kvikmyndum

Anna María Björnsdóttir

2025-04-01 10:51

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Paul Mescal, Barry Keoghan, Harris Dickinson og Joseph Quinn fara með hlutverk Bítlanna í fjórum nýjum myndum um hljómsveitina goðsagnarkenndu. Von er á þeim árið 2028.

Paul Mescal, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í Normal People og Gladiator II, leikur nafna sinn Paul McCartney og Barry Keoghan sem fór með stórleik í myndinni Saltburn leikur Ringo Starr.

Harris Dickinson skaust hratt upp á stjörnuhimininn þegar hann lék á móti Nicole Kidman í Babygirl en hann fer með hlutverk John Lennons. Joseph Quinn, sem lék nýverið í Marvel-myndinni Fantastic Four, leikur George Harrison.

Sony Pictures

Það er Óskarsverðlaunahafinn Sam Mendes sem leikstýrir öllum fjórum kvikmyndunum um Bítlana, þar sem hver mynd verður frá sjónarhóli eins þeirra. Ætlunin er svo flétta saman sögum þeirra í myndunum fjórum.

Þetta var tilkynnt á ráðstefnunni CinemaCon í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær. Þar sagði leikstjórinn Bítlarnir væru allir svo ólíkir og til þess dýpri skilning á þeim vilji hann gefa hverjum og einum þeirra betri skil í fjórum ólíkum myndum sem tengjast þó allar. Saman segja allar fjórar myndirnar sögu merkustu hljómsveitar allra tíma.

Sam Mendes, leikstjóri. AP/Invision/Chris Pizzello

Áður hafa verið gerðar myndir um Bítlana, til dæmis Backbeat, Nowhere Boy og I Wanna Hold Your Hand en þetta er í fyrsta sinn sem allir í hljómsveitinni, lifandi og umsjónarmenn dánarbúa þeirra sem fallnir eru frá, hafa veitt fullt leyfi til þess segja sögur þeirra og nota tónlist þeirra í leikna frásagnarmynd.

Hljómsveitin var stofnuð árið 1960 og hafði mikil áhrif á dægurmenningu og breytti tónlistarlandslaginu til frambúðar. Þeir voru einnig fyrstu alþjóðlegu nútímapoppstjörnurnar.

Aðeins Paul McCartney og Ringo Starr eru enn á lífi en John Lennon var myrtur árið 1980 og Goerge Harrison lést úr krabbameini 2001. Árið 2023 gáfu McCartney og Starr út lokalag Bítlanna, Now and Then, sem byggðist á gömlum upptökum af rödd Lennons og gítarspili Harrisons.

Nafnalisti

  • Barry Keoghanírskur stórleikari
  • Chris Pizzello
  • CinemaConráðstefna
  • Fantastic Fourkvikmynd
  • George Harrisonbítill
  • Gladiator II
  • Goerge Harrison
  • Harris Dickinson
  • John Lennontónlistarmaður
  • John Lennonstónlistarmaður
  • Joseph Quinnleikari
  • Nicole Kidmanáströlsk leikkona
  • Normal Peopledramaþáttaröð
  • Now and Thenhins vegar ekki í nægilega góðum gæðum og það var lagt til hliðar
  • Nowhere Boy
  • Paul McCartneyfyrrverandi bítill
  • Paul Mescalleikari
  • Ringo Starrbítill
  • Saltburnkvikmynd
  • Sam Mendesleikstjóri
  • Sony Pictureskvikmyndaver
  • Wanna Hold Your Hand

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 310 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,89.