Gos við bæjar­mörkin: Aukafréttatími í há­deginu

Gunnar Reynir Valþórsson

2025-04-01 11:16

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fréttastofa verður með sérstakan sjónvarpsfréttatíma í hádeginu vegna eldsumbrotanna á Reykjanesi.

Fréttamenn okkar Tómas Arnar Þorláksson og Kristján Már Unnarsson eru á svæðinu og greina frá stöðunni í beinni.

Einnig sjáum við myndefni af hamförunum en versta sviðsmynd Almannavarna raungerðist í morgun þegar sprungan opnaðist innan við varnargarðinn fyrir ofan Grindavík.

Einnig verðum við á Laugaveginum hjá Almannavörnum þar sem rætt verður við viðbragðsaðila og þá heyrum við einnig í Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra sem er stödd þar til fylgjast með stöðu mála.

Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingur rýnir í stöðuna og við fáum sjá magnað myndefni frá gossvæðinu.

Fréttatíminn hefst á slaginu tólf og verður í beinni útsendingu á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Nafnalisti

  • Kristín Jónsdóttirhópstjóri
  • Kristján Már Unnarssonfréttamaður Stöðvar 2
  • Tómas Arnar Þorláksson
  • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttirþingmaður Viðreisnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 111 eind í 6 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,71.