Aldrei fleiri úlfar í Danmörku

Þorgils Jónsson

2025-04-03 18:18

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Úlfastofninn í Danmörku hefur ekki verið sterkari í seinni tíð þar sem vísindamenn Háskólans í Árósum telja 42 úlfa.

Úlfar eru svotil nýfarnir koma sér fyrir í Danmörku eftir langa fjarveru, en fyrsti úlfurinn í næstum 200 ár fannst þar í landi árið 2012, því er fram kemur hjá fréttaveitunni NTB.

Síðan þá hefur þeim fjölgað nokkuð. Bæði hafa fleiri úlfar komið norður yfir landamærin frá Þýskalandi og eins eru þeir farnir fjölga sér innanlands, en þeir halda sig á Jótlandi.

Dönsk stjórnvöld hafa um nokkra hríð velt fyrir sér hvernig mætti halda fjölda dýranna í skefjum.

Fjallað var um danska úlfa í Speglinum ekki alls fyrir löngu. Umfjöllunina sjá hér að neðan.

Nafnalisti

  • NTBnorsk fréttastofa

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 124 eindir í 7 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,83.