EfnahagsmálViðskipti

„Mjög mikilvægt að hið opin­bera fari ekki inn á fast­eigna­markaðinn“

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-01 11:17

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varaði sterklega við því hið opinbera færi inn á íslenskan fasteignamarkað eða byrji niðurgreiða húsnæði með einhverjum hætti.

Ásgeir og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, voru á opnun fundi í efnahags- og viðskiptanefnd í morgun til fjalla um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans.

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins og formaður nefndarinnar, spurði Ásgeir og Tómas um húsnæðismarkaðinn en hann sagði síðustu 18 ár íbúðalán á Íslandi væru blóði drifin.

Ragnar spurði Ásgeir og Tómas um möguleikann á taka upp nýtt húsnæðislánakerfi þar sem ríkið kæmi inn á móti bönkum og lífeyrissjóðum.

Er það virkilega skoðun fjármálastöðugleikanefndar þetta kerfi sem við búum við eðlilegt í öllum samanburði þegar það kemur lánakjörum til heimila? spurði Ragnar.

Ásgeir sagðist alltaf vera opinn fyrir umbótum og breytingum sem væru jákvæðar og allar tillögur um hvernig hægt breyta kerfinu væru mjög vel þegnar.

Ég legg áherslu á það, því ég tel það mjög mikilvægt, hið opinbera ekki fara inn á fasteignamarkaðinn. Ég tel það röng ráðstöfun á fjármunum hins opinbera. Líka í ljósi þess sem ég sagði um skuldir hins opinbera eins og þær eru núna, sagði Ásgeir.

Hann sagði það gætu komið rangir hvatar þegar opinberir aðilar fara niðurgreiða eða leggja fram tryggingar sem taka áhættuna af fólki eða eftir atvikum verktökum sem eru selja fasteignir.

Ég held Íslendingar verði mjög mikið núna hugsa um það, eftir því sem á undan hefur gengið, hvaða svigrúm ríkissjóður hefur til þess gera hluti og hvað hann á gera. Þetta er ein ókeypis ráðgjöf sem ég ætla veita hérna, sagði Ásgeir.

Hvar er peningum best fyrir komið? Til dæmis núna er töluvert mikið af peningum bundið í eigið bankastofnana, bætti Ásgeir við.

Ásgeir sagði það ljóst sínu mati væri það ekki rétt ráðstöfun á peningum og hann var sammála þeim áformum um selja hlut ríkisins í bönkunum.

Ég held þeim peningum betur borgið annars staðar, til dæmis í innviði eða eitthvað álíka. Lykilatriði er það er ekki hægt nota sama peninginn tvisvar og þegar skuldahlutfallið er komið þetta hátt hjá okkur og við höfum lent í þessum áföllum sem ríkissjóður hefur tekið á sig þá þurfum við bara varlega í það gefa út ríkisábyrgðir. Íbúðalánasjóður var með ríkisábyrgð sem virtist vera kostnaðarlaust en kostaði síðan bara gríðarlega mikið af peningum.

Ásgeir sagði það þurfi vera hér kerfi sem byggir ekki á opinberum ábyrgðum eða hið opinbera á bakvið það.

Það eru bankarnir, það eru lífeyrissjóðirnir, þessir aðilar ættu alveg mínu mati geta lánað fólki fyrir fasteignakaupum. Það velta fyrir sér hvernig þetta samspil á vera, sagði Ásgeir.

hans mati gæti ríkið komið til móts við ákveðna hópa á fasteignamarkaði sem er mikilvægt hjálpa. Það eru þó einhver pólitísk viðmið sem þið setjið í ljósi þess sem kjósendur ykkar vilja og við ætlum svo sem ekki hafa vit á því.

En það er mjög mikilvægt þessi aðstoð einblínt á þá hópa. Þar sem Íbúðalánasjóður ætlaði gera var fara lána allri millistéttinni. Það sem ekki gerast er ríkissjóður fara niðurgreiða húsnæði fyrir fólk. Það er eitthvað sem Seðlabankinn fær beint í hausinn með hækkunum á fasteignaverði og vaxtahækkunum. Þá er ríkissjóður einfaldlega ganga gegn stefnu Seðlabankans einhverju marki í því.

Nafnalisti

  • Ásgeir JónssonSeðlabankastjóri
  • Ragnar Þór Ingólfssonformaður
  • Tómas Brynjólfssonskrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 624 eindir í 28 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 85,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.