Sigurjón: „Guðmundur Ingi gerir sér eflaust grein fyrir að þetta er bara rétt að byrja“

Ritstjórn DV

2025-03-26 11:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Vonandi er Guðmundur Ingi nógu hraustur til standa árásirnar af sér, segir Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri og fréttastjóri til margra ára, á vef sínum Miðjunni.

Sigurjón skrifar pistil um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, sem sagði af sér embætti í síðustu viku, og umræðuna um enskukunnáttu Guðmundar Inga Kristinssonar.

Guðmundur Ingi tjáði sig á brotakenndri ensku á leiðtogafundi í Silfurbergi í Hörpu í gærmorgun þar sem rætt var um áskoranir í skólakerfinu. Á samfélagsmiðlum bar á gagnrýni á ráðherrann vegna enskukunnáttu hans.

DV greindi í morgun frá skrifum Jónasar Más Torfasonar, lögmanns og fyrrverandi blaðamanns, sem sagði þá sem gera sér mat úr ávarpi ráðherrans sýna af sér stéttahroka af verstu sort.

Sjá einnig: Jónas Már tætir í sig þá sem hæðast Guðmundi Inga eftir ávarpið umtalaðaÓlýðræðislegur stéttahroki af verstu sort

Sigurjón byrjar pistil sinn á skrifa um mál Ásthildar Lóu og segir sumt bendi til þess aðförin æru hennar hafi verið stýrt af skrímsladeildinni víðfrægu og vondu eins og hann orðar það.

Vitneskjan um son ÁLÞ er ekkert leyndarmál. Það eflaust finna í Íslendingabók. Hefði verið flett upp í þeirri gagnmerku bók hefði blasað við sonur ÁLÞ og föðurins var ekki getin í glæp. Við blasir aðförinni hafi verið stýrt með þessum árangri. Hér er enginn uppljóstrari. Bara alls ekki. Konan fullyrti og var ekki efast um réttmæti þess sem hún sagði áður en fréttir eru skrifaðar og sagðar. Búmm. Barnið var getið á löglegan hátt. Báðir foreldrar komnir á viðurkenndan aldur, segir Sigurjón og heldur áfram:

Fingraför Áslaugar Örnu setja sterkan svip á málið. Sómakær kona liggur í valnum. Svift mannorði mati gerendanna. Hún vék úr ráðherraembætti. Brotin á sál og líkama, segir hann og bætir við vonandi eftirmaður Ásthildar Lóu, Guðmundur Ingi Kristinsson, með breitt bak.

Reynt er gera lítið úr honum þar sem hann er ekki nógu góður í ensku fyrir stjórnarandstöðuna. Guðmundur Ingi gerir sér eflaust grein fyrir þetta er bara rétt byrja. Skrímsladeildin er búin finna veikan hlekk hjá honum. Áfram verður haldið. Vonandi er Guðmundur Ingi nógu hraustur til standa árásirnar af sér.

Nafnalisti

  • Áslaug Arnaháskóla, iðnaðarr- og nýsköpunarráðherra
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðmundur Ingifyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar
  • Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús
  • Jónas Már Torfasonsonur Ölmu Möller landlæknis
  • Sigurjón M. Egilssonritstjóri Miðjunnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 390 eindir í 27 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.