Slys og lögreglumál

Trump gerir Írana ábyrga fyrir aðgerðum Húta

Ritstjórn mbl.is

2025-03-17 17:33

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í dag hann kæmi til með gera Írana milliliðalaust ábyrga fyrir öllum árásum uppreisnarmanna Húta á bandarísk skip á Rauðahafi, en uppreisnarmennirnir, sem klerkastjórnin í Teheran styður, hafa síðustu misseri skotið fjölda skeyta bandarískum og annarra þjóða flutningaskipum í því augnamiði hindra vöruflutninga til Ísraels.

Litið verður á hvert skot sem Hútar skjóta hér eftir sem skotið með vopnum og frá stjórnvöldum ÍRANS og ÍRAN verður gert ábyrgt og mun finna fyrir afleiðingunum, skrifar Trump á samfélagsmiðil sinn, Truth Social, í dag.

Öllum árásum svarað af krafti

Bandaríkjaher hefur gert reglulegar gagnárásir á skotmörk á yfirráðasvæði Húta mánuðum saman og er það nýlunda Trump atyrði Íran fyrir árásir þeirra, en breyting varð í kjölfar árásar Bandaríkjamanna á skotmörk í Jemen á laugardaginn sem varð 53 bana og særði 98.

Sem svar við árásinni gerðu Hútar tvær árásir á bandarískt flugmóðurskip auk þess blása til fjölmennra mótmæla í þeim hlutum Jemen sem lúta þeirra stjórn. Voru þetta fyrstu árásir þeirra á sjóför á Rauðahafi síðan 19. janúar.

Öllum frekari árásum eða hefndaraðgerðum af hálfu Húta verður svarað af fullum krafti, skrifaði Trump enn fremur í pistli sínum og bætti því við Íran hefði tekið sér hlutverk saklausa fórnarlambsins í væringunum.

Að auki hefur Trump krafist þess kjarnorkusamkomulag við Íran verði endurnýjað í krafti hámarksþvingana af hálfu forsetans.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Truth Socialsamfélagsmiðill

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 248 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.