Stjórnmál

Össur kallar eftir að RÚV kanni hlut Áslaugar Örnu

Ritstjórn DV

2025-03-22 18:25

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, veltir því upp hvort RÚV þurfi ekki kanna mögulegan upplýsingaleka frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í tengslum við mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna0g menntamálaráðherra.

Sjá einnig: Tengdamóðirin var í sambandi við Áslaugu Örnu

Fyrrverandi tengdamóðir manns sem gat Ásthildi Lóu barn er hann var á sextánda ári og Ásthildur var 22 ára segist hafa beðið um fund með forsætisráðherra um málið. Sakar hún forsætisráðherra um trúnaðarbrest þar sem forsætisráðherra sagði Ásthildi frá fundarbeiðninni. Fréttir í þessa veru hafa verið gagnrýndar þar sem ljóst konan hafi aflétt trúnaði á þessum upplýsingum með því segja Ásthildur mætti sitja fundinn líka. Sýnist sitt hverjum um þetta.

Einnig hefur komið fram tengdamóðirin var í sambandi við Áslaugu Örnu. Össur segir í Facebook-færslu þögn Áslaugar Örnu í málinu undarleg í ljósi þess hvað margir Sjálfstæðismenn hafa tjáð sig um það:

Þarf ekki rannsaka þátt Áslaugar Örnu?

Hrútakofinn á Mogganum og ýmsir þingmenn Sjálfstæðisflokksins ásamt öðrum hafa velt sér upp úr lekum úr forsætisráðuneytinu og reynt koma höggi á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Af þingmönnum nefna Hildi Sverrisdóttur og jafnvel nýkjörinn formann Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Hins vegar vekur athygli ærandi þögn Áslaugar Örnu, yfirlýsingaglaðasta þingmanns flokksins, sem þó hefur ekki sparað sig um hvers kyns málefni eftir fallið í nýafstöðnu formannskjöri.

er hins vegar upplýst Áslaug Arna vissi af málinu löngu áður en það breikaði í fjölmiðlum. Það setur meintan leka á upplýsingum Ólafar í allt annað og alvarlegra samhengi.

Grafin inn í frétt RÚV í gærkvöldi er frásögn af því degi eftir Ólöf tengdamóðir sendi forsætisráðuneytinu langan og ítarlegan tölvupóst þar sem hún rakti erindi sitt sendi hún líka tölvupóst á Áslaugu Örnu. Var það kanski sami tölvupósturinn?

Samkvæmt frétt RÚV hafði því fólk í innsta hring Sjálfstæðisflokksins upplýsingar um málið undir höndum löngu áður en það komst til fjölmiðla. RÚV hefr til þessa kosið fara ekki dýpra í málið. Er það til vernda heimildarmenn sína?

Það var forystu Sjálfstæðisflokksins til minnkunar freista þess nota þetta mál til sverta mannorð forsætisráðherra. Sérstaklega þegar haft er í huga skv. RÚV hafði fallin erfðaprinsessa í flokknum upplýsingar um málið. Ætlar RÚV virkilega ekki ganga eftir því Áslaug Árna skýri stöðu sína í málinu?

Eftir ásakanir úr Sjálfstæðisflokknum um forsætisráðherra ábyrg fyrir lekum af erindi sem henni barst er það skýlaus krafa Áslaug Arna geri hreint fyrir sínum dyrum. Hvað gerði hún við þær upplýsingar sem henni bárust um málið?

Nafnalisti

  • Áslaug Árna
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins
  • Hildur Sverrisdóttirfyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Ólöfdeildarstjóri í samgönguráðuneytinu 1996-1999 og síðan lögfræðingur hjá Verðbréfaþingi Íslands
  • Össur Skarphéðinssonþingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 443 eindir í 24 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 95,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.