Donald Trump tryllist út af málverki sem stuðningsmenn hans borguðu fyrir

Pressan

2025-03-24 14:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur krafist þess ríkisstjórinn í Colarado fjarlægi málverk sem er til sýnis í ráðhúsinu.

Enginn kann meta slæma mynd eða málverk af sjálfum sér, en þetta tiltekna í Colarado, sem ríkisstjórinn hengdi upp í ráðhúsinu við hlið hinna forsetanna, var viljandi afbakað með slíkum hætti ég hef aldrei vitað annað eins, sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínu Truth Social á sunnudaginn. Málarinn gerði líka myndina af Obama og hann kemur þar glæsilega út, en málverkið af mér er svo sannarlega það versta. Henni hlýtur vera bregðast bogalistin með aldrinum.

Trump segist frekar vilja ekkert málverk af sér í ráðhúsið heldur en það sem hangir þar núna. Hann segir fjölda stuðningsmanna hafa sett sig í samband við ráðhúsið til reyna málverkið fjarlægt. Trump hafi því sett sig í samband við öfgavinstri ríkisstjórann Jared Polis og kallað eftir því hann taki málverkið niður og skammist sín.

Trump notaði tækifærið og gagnrýndi ríkisstjórann fyrir hafa ekki tekið nægilega vel á glæpum í Colarado, einkum glæpum sem tengjast genginu Tren de Aragua sem er nýjasta grýlan í aðgerðum Trump gegn innflytjendum. Jared ætti skammast sín.

Gagnrýni forsetans missir þó marks þegar málið er krufið. Þetta umdeilda málverk hefur nefnilega ekkert með Jared Polis gera. Það var árið 2018 sem aðgerðarsinni smyglaði málverki af Rússlandsforseta, Vladimir Pútín, inn í ráðhús Colarado. Veggsvæði var þar frátekið fyrir Trump við hlið fyrrum forseta Bandaríkjanna. Hins vegar höfðu repúblikanar ekki náð fjármagna slíkt málverk á þessum tíma og svæðið því autt þar til málverkinu af Pútín var laumað þangað.

Eftir þennan gjörning ákváðu þingmenn repúblikana í Colarado ráðast í fjáröflun og á aðeins 36 klukkustundum tókst safna 1,4 milljón sem dugði fyrir málverkinu. Það voru því stuðningsmenn Trump sem borguðu málverkið, en ekki ríkisstjórinn.

Listakonan sem málaði það heitir Sarah Boardman sem hafði áður málað Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseta, og fengið mikið lof fyrir og þar áður hafði hún málað George W. Bush árið 2012.

Nafnalisti

  • Barack Obamafyrrverandi forseti Bandaríkjanna
  • Donald Trumpfyrrverandi forseti Bandaríkjanna
  • George W. Bushfyrrverandi forseti Bandaríkjanna
  • Jaredþriggja barna faðir
  • Jared Polisríkisstjóri Colorado
  • Obamamikill körfuboltaáhugamaður
  • Sarah Boardman
  • Tren de Aragua
  • Truth Socialsamfélagsmiðill
  • Vladimir PútínRússlandsforseti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 355 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 94,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.