Metnaðar­full mark­mið og stórir sigrar

Halla Helgadóttir

2025-04-02 08:03

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Við Íslendingar erum með ríkustu þjóðum heims og eigum frábært land, náttúru og samfélag þar sem ríkir frelsi. Hér eru tækifæri til sköpunar og uppbyggingar en landið er ríkt af auðlindum, mannauði og hugviti. Í því samhengi er áhugaverð þróun orðræða í samfélagi, stjórnmálum og jafnvel atvinnulífi snúist um þessar mundir mest um; skort, skuldir og nauðsyn hagræðingar. Þessi síendurteknu stef dynja á okkur alla daga. Minna er talað um metnaðarfull markmið, stóra sigra, tækifæri, spennandi verkefni, skapandi hugmyndir, framkvæmdagleði og gæði.

Skortstaða eða tækifæri til nýsköpunar?

Skapandi fólk; hönnuðir, arkitektar, listafólk og frumkvöðlar stefna yfirleitt á stóra sigra og sjá tækifæri til nýsköpunar og spennandi möguleika í hverju verkefni. Það er sterk og bjartsýn nálgun sem skilar miklum gæðum. Hjá þeim er glasið fullt en ekki hálftómt sem virðist oftast vera staðan hjá hagræðingum þessa heims. Vissulega er gott og gilt leita ofgnótt og sóun þar sem hana gæti verið finna. Þegar það tekst er mikilvægt horfa raunsætt á málin og hafa kjark og þor til forgangsraða og einfaldlega hætta verkefnum. En það er líka mikilvægt hafa vit á því sóa ekki tíma og orku í leita aurum til spara þar sem enga er finna.

Þar sem hver króna margfaldast

Ríkisstjórnin fékk sendar yfir 4 þúsund tillögur til hagræðingar í ríkisrekstri gegnum samráðsgátt stjórnvalda en ein þeirra er gömul og margrýnd hugmynd um ríkisvædda Listamiðstöð. Það er merkilegt til þess hugsa hún hafi þótt svo áhugaverð og líkleg til árangurs hún rataði inn í lokatillögur sem voru um 60 talsins. Það er grátbroslegt leita fjárhagslegri hagræðingu í minnstu upphæðum ríkisreikningsins og dapurlegt einhverjum detti í hug hagræðingu finna í vanfjármögnuðum bjartsýnisverkefnum eins og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og öðrum Miðstöðvum sem ætlað er efla skapandi greinar og listir. Óvíða er ríkisfé eins vel nýtt, en sýnt hefur verið fram á hver króna frá ríkinu margfaldast í þeim geirum enda hagsýni og ráðdeild innbyggð í þann heim.

Hagræðing í andstöðu við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar

Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar og stefnuskrám flokkanna eru metnaðarfull markmið um kraftmikla uppbyggingu á sviði skapandi greina. Stjórnvöld vilja styðja við menningarlíf, listafólk og áframhaldandi vöxt skapandi greina á Íslandi af myndarskap og horfa til efnahagslegrar þýðingar menningarstarfsemi og skapandi greina, sem verða sífellt mikilvægari hluti atvinnulífs og verðmætasköpunar. Uppbyggingin getur byggt á markvissri vinnu undanfarinna ára, vandaðri stefnumótun og fjárfestingu greinanna sjálfra og stjórnvalda. Áhersla á skapandi greinar og listir snýst um efla greinarnar, auka áhrifamátt þeirra sem í þeim starfa og gefa þeim tækifæri til vaxa og eflast, hverri á sínum forsendum.

Samanburðarlönd veðja á skapandi greinar

Framtíðarsýn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs er Ísland verði alþjóðlega þekkt fyrir hönnun og arkitektúr og þær greinar verði megin hreyfiafl í samfélagi okkar og atvinnulífi til framtíðar. Aðferðafræði hönnunar og arkitektúrs beita markvisst til auka lífsgæði á Íslandi með áherslu á sjálfbæra verðmætasköpun fyrir samfélagið. Þannig geta stjórnvöld og atvinnulíf aukið gæði, bætt heilsu og mannlíf, skapað áhugaverð störf og aukið nýsköpun á ólíkum sviðum. Í örum tæknibreytingum nútímans leggja þau lönd sem við berum okkur helst saman við, megináherslu á skapandi greinar til tryggja áframhaldandi lífsgæði.

Einstakt tækifæri

Við blasir einstakt tækifæri framsýnnar ríkisstjórnar með Loga Einarsson arkitekt og ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla í fararbroddi en hann býr yfir mikilli þekkingu á skapandi greinum. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna á undanförnum árum hefur störfum í greinum hönnunar og arkitektúrs fjölgað um helming, rekstrartekjur hafa þrefaldast og laun hækkað. Þar að auki hafa um 500 ungir og skapandi hönnuðir og arkitektar útskrifast úr háskólum hér á landi og erlendis á síðastliðnum tíu árum.

Hlaupum í rétta átt!

Við erum fámenn þjóð í stóru landi og búum yfir snerpu, seiglu, einstökum sköpunarkrafti og getum hlaupið hratt þegar þarf. Við vekjum athygli og aðdáun víða um heim fyrir einstakan árangur á fjölbreyttu sviði skapandi greina, en þrátt fyrir það ýtum við skapandi greinum ítrekað aftast í röðina þegar kemur áhrifum og fjármagni.

þarf metnaðarfull markmið, við höfum fullkomnar aðstæður til gera skapandi greinar, hönnun og arkitektúr megintækjum til framfara. Mikil undirbúningsvinna hefur verið unnin og við erum tilbúin. Eina sem þarf er kjarkur og þor til setja skapandi greinar í forgrunn og fjárfesta af alvöru í þeim eins og við höfum gert af myndarskap við aðrar atvinnugreinar.

Við lifum á víðsjárverðum tímum og búum í heimi sem bráðvantar áherslu á samfélag, listir, sköpun, frjálsa hugsun, samveru, mannúð, samskipti fegurð og nýsköpun á forsendum góðs mannlífs, umhverfis, sjálfbærni og gæða.

Hlaupum þangað, því þar finnum við stóra sigra.

Höfundur er framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs sem stendur HönnunarMars 2.6. apríl.

Nafnalisti

  • Hagstofu Íslandsárið 2015
  • HönnunarMarshönnunarhátíð
  • Logi Einarssonfráfarandi formaður Samfylkingarinnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 854 eindir í 40 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 33 málsgreinar eða 82,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.