Orðrómarnir um Kamala Harris færast í aukana – Kom hún upp um sig á Óskarsverðlaunahátíðinni?

Eyjan

2025-03-10 07:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Kamala Harris tapaði stórt fyrir Donald Trump í forsetakosningunum í nóvember. Eftir það hefur verið frekar hljótt um hana og lítið hefur sést til hennar.

En færast orðrómar í aukana varðandi framtíðaráætlanir hennar á pólitíska sviðinu.

Politico segir Harris íhugi alvarlega bjóða sig fram sem ríkisstjóra í Kaliforníu. Segir miðillinn í samkvæmi, í tengslum við Óskarsverðlaunahátíðina, hafi Harris sagt öðrum gesti hún ætli gefa sér tíma þar til í sumar til taka endanlega ákvörðun um hvort hún bjóði sig fram. Politico hefur þetta eftir tveimur heimildarmönnum.

Er Harris sögð hafa sagt stuðningsfólki sínu, flokkssystkinum og fjölskyldu sinni, hún muni taka ákvörðun innan nokkurra mánaða.

Ef Harris tekur slaginn um verða eftirmaður núverandi ríkisstjóra, Gavin Newsom, og sigrar, þá verður hún fyrsta svarta konan til gegna embætti ríkisstjóra í Bandaríkjunum. Sigur hennar myndi einnig næstum örugglega útiloka hún bjóði sig fram til forseta 2028 en hún er einnig sögð íhuga þann möguleika.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Gavin Newsomríkisstjóri
  • Kamala Harrisvaraforseti Bandaríkjanna
  • Politicobandarískt blað

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 177 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.