Stjórnmál

Leggur til ráðherranefnd um málefni fanga

Ritstjórn mbl.is

2025-03-07 14:20

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland, félags- og vinnumarkaðsráðherra, tilkynnti fyrirvaralaust í gær hún hygðist leggja það til við ríkisstjórn ráðherranefnd yrði skipuð um málefni fanga.

Reglur gera ráð fyrir forsætisráðherra taki ákvörðun um skipun ráðherranefnda, með samþykki ríkisstjórnar, en ekki hefur náðst í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna málsins.

Hreifst af erindi Afstöðu og vill skipa nefnd

Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, staðfestir þetta í samtali við blaðamann, sem áður hafði fengið veður af hinni fyrirhuguðu ráðherranefnd.

Guðmundur segir ráðherra hafa tilkynnt þetta við styrkjaúthlutun í gær, en Guðmundur hélt þar erindi þar sem hann sagði frá stöðunni í fangelsismálum, fyrir hverja Afstaða væri vinna, sem er fjölbreyttur hópur fanga og fjölskyldur þeirra, auk þess sem hann lagði áherslu á hversu samfélagslega mikilvægt og ábatasamt það væri reyna koma sem flestum föngum á beinu brautina í lífinu.

Eftir þessa ræðu sagði Inga: Ég var bara ákveða það núna hér við þessa ræðu ég ætla leggja til við ríkisstjórnina það verði sett á laggirnar ráðherranefnd um málefni fanga.

Aldrei verið bjartsýnni

Guðmundur segir slíka nefnd vera einmitt það sem samtökin kalli eftir.

Við viljum yfirstjórn fangelsismála færist yfir í forsætisráðuneytið, því það vantar verkstjóra yfir fangelsismálin. Dómsmálaráðherra myndi áfram sinna rekstri fangelsanna og fangavarða og taka allar ákvarðanir um fanga og sinna refsingum þeirra, en það eru bara svo mörg önnur ráðuneyti sem koma eins og menntamála-, heilbrigðis-, og félagsmálaráðuneyti, sem hafa brugðist og hafa ekkert verið gera. Þar af leiðandi vantar verkstjóra til þess kerfið virki.

Þess vegna vildi ég hafa svona nefnd sem tæki stefnumarkandi ákvarðanir í málaflokknum, réði verklagi og jafnvel einhvers konar úrskurðarnefnd um kærur fanga gagnvart dómsmálaráðuneytinu, segir Guðmundur.

Hann segir málið snúast um úr fangelsunum útskrifist fólk sem hæft til þess koma út í samfélagið, búið læra eitthvað og nýta tímann, í stað þess þaðan útskrifist öðru fremur öryrkjar.

Ég verð svo oft bjartsýnn þegar það koma nýir stjórnendur og svo verður maður alltaf jafn reiður og sár þegar það gerist ekki neitt. Þannig hefur þetta í gegnum tíðina. En ég hef aldrei verið eins bjartsýnn og núna þegar ráðherra ákveður það ætli hún leggja til við ríkisstjórnina skipa þessa nefnd og ég vona það verði, því við þurfum á því halda, segir Guðmundur vongóður um framhaldið.

Nafnalisti

  • Guðmundur Ingi Þóroddssonformaður
  • Inga Sælandformaður
  • Kristrún Frostadóttirformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 424 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.