Stjórnmál

Orðið á götunni: Ekki sama Jón og séra Jón hjá Sjálfstæðismönnum – sjá ekki bjálkann í eigin auga

Eyjan

2025-03-16 18:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, menntamálaráðherra, lýsti fyrir helgi þeirri skoðun sinni hún ætti ekki von á réttlæti frá íslenskum dómstólum. Tilefnið var niðurstaða dómstóls í máli sem hún átti hlut . Orðið á götunni er hún hefði mátt orða skoðun sína á varfærnari hátt. Degi síðar viðurkenndi hún það sjálf og dró í land. Þótti hún maður meiri.

Orðið á götunni er traust fólks til dómstóla mælist mun meira meðal þeirra sem aldrei hafa þurft leita til dómstóla eftir réttlæti en meðal hinna sem reynt hafa réttlæti íslenskra dómstóla á eigin skinni.

Orðið á götunni er hneykslan sem fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins lýsti á orðum menntamálaráðherra hafi verið í alla staði athyglisverðari en ummælin sem hneykslast var á. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, náði ekki upp í nefið á sér af hneykslan og sagði orð menntamálaráðherra aðför lýðræðinu.

Þetta ku vera sama Áslaug Arna og studdi baráttu Eddu Falak á sínum tíma fyrir því dómstóll götunnar, hin svokallaða Ég trúi hreyfing, myndi leysa réttarkerfið af hólmi. Sjálf mun Edda hafa kallað sig dómsmálaráðherra götunnar.

Það virðist ekki hafa truflað ýmsa Sjálfstæðismenn dómsmálaráðherra þeirra hyggi með þessum hætti rótum réttarríkisins, þeim hornsteini siðaðs samfélags sem réttlát málsmeðferð fyrir dómi er. Í nýliðnum formannsslag, þar sem hársbreidd munaði Áslaug Arna væri kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, studdu fyrrum dómsmálaráðherrar flokksins, Sólveig Pétursdóttir og Björn Bjarnason, Áslaugu Örnu með ráðum og dáð og voru í hennar innsta stuðningsmannakjarna.

Orðið á götunni er innan Sjálfstæðisflokksins séu margir aðrir sem myndu biðja guð blessa Ísland ef von væri á Áslaugu Örnu í embætti dómsmálaráðherra á nýjan leik.

Þá vekur það einnig athygli ekki ekki komu Sjálfstæðismenn dómskerfinu til varnar er þáverandi forsætisráðherra flokksins, Davíð Oddsson, hraunaði yfir Hæstarétt fyrir dæma öryrkjum í vil í Öryrkjamálinu árið 2000. Sagði Davíð Hæstarétt marklausan þar sem dómarar í fjölskipuðum undirrétti hefðu komist annarri niðurstöðu. Enginn Sjálfstæðismaður fann þá aðför forsætisráðherra æðsta dómstól þjóðarinnar. Sami forsætisráðherra strunsaði nokkru síðar baðaður fjölmiðlaljósi niður í KB-banka og tók út alla sína innistæðu í bankanum og lokaði reikningi sínum vegna þess hann var óánægður með stjórnendur bankans. Ekki fannst Sjálfstæðismönnum hvatning til áhlaups á bankann aðfinnsluverð.

Orðið á götunni er leiðarahöfundur Morgunblaðsins hafi í laugardagsblaði helgarinnar svo bitið hausinn af skömminni með ósvífinni og rætinni árás á menntamálaráðherra vegna ummælanna í síðustu viku. Margt bendir til þess þar haldi um penna sami maður og réðst gegn Hæstarétti þegar honum mislíkaði dómur hans í öryrkjamálinu og atti síðan þjóðinni gegn kerfislega mikilvægum banka vegna þess hann móðgaðist yfir launastefnu fyrir stjórnendur hans. Hann kallar eftir afsögn menntamálaráðherra. Slíkt heitir víst sjá flísina í auga náungans en ekki bjálkann í eigin auga.

Orðið á götunni er í Sjálfstæðisflokknum sitt hvað Jón og séra Jón.

Nafnalisti

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Björn Bjarnasonfyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins
  • Davíð Hæstarétt
  • Davíð Oddssonritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra
  • Edda Falakhlaðvarpsstjórnandi
  • Jónseðlabankastjóri
  • Sólveig Pétursdóttirfyrrverandi dómsmálaráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 501 eind í 23 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 21 málsgrein eða 91,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.