Viðskipti

Segir ÍR að slökkva á skiltinu

Árni Sæberg

2025-03-31 11:49

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur krafist þess Íþróttafélags Reykjavíkur slökkvi á ljósaskilti á horni Breiðholtsbrautar og Seljaskóga í Breiðholti. Í kæru sinni til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir ÍR skiltið mikilvæg tekjulind fyrir barna- og unglingastarf félagsins.

Í kæru ÍR segir félagið fari fram á ákvörðun bygggingarfulltrúa um félagið skuli slökkva á LED-skilti á horni Breiðholtsbrautar og Seljaskóga verði felld úr gildi. Skiltið hafi staðið þarna árum saman, hafi fyrst verið flettiskilti en síðar uppfært í nútímatækni, það er gert stafrænt og félagið telji það heimild fyrir því í samþykktum Reykjavíkurborgar um skilti frá maí 2020.

Borgin hefði nefnt heimildarskort fyrr væri hann til staðar

Ef væri ekki heimild fyrir skiltinu væri borgin búin nefna það í fyrri samskiptum. Í framhaldi af samkomulagi ÍR og borgarinnar frá maí 2016 ætlar borgin finna skiltinu nýjan stað þar sem trjágróður á núverandi stað er skerða sýnleika skiltisins og þar með virðið, en auglýsingatekjur af skiltinu er mikilvæg tekjulind fyrir barna- og unglingastarf félagsins.

Síðla árs 2023 hafi félagið fylgt þessu samkomulagi eftir og óskað eftir skoðaðar yrðu leiðir til auka sýnileika skiltisins og í bréfi dagsettu 18. janúar 2024 frá skipulagsfulltrúa komi fram þegar heimild fyrir þessu skilti í deiliskipulagi og hvergi nefnt neitt leyfi vantaði fyrir skiltinu á núverandi stað.

Skipti mjög miklu máli

Niðurstaðan hafi verið ekki væru gerðar skipulagslegar athugasemdir við ÍR léti vinna breytingu á deiliskipulagi til heimila færslu á því innan lóðar. Hvergi hafi komið fram athugasemdir við skiltið og núverandi staðsetningu. Í ljósi ofangreindra upplýsinga óski ÍR eftir byggingarfulltrúi endurskoði þá ákvörðun sína slökkva þurfi á skiltinu.

Loks segir í kafla kærunnar um hagsmuni kæranda ákvörðun byggingarfulltrúa hafi mjög mikil áhrif á hagsmuni félagsins. Ef slökkt yrði á skiltinu töpuðust leikutekjur, sem skipti félagið miklu máli fyrir barna- og unglingastarf félagsins.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 322 eindir í 14 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 92,9%.
    • Margræðnistuðull var 1,74.