Íþróttir

Ekki þess virði að taka á­hættu með Glódísi

Sindri Sverrisson

2025-03-31 11:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hún á við meiðsli stríða og er bara ekki klár í þessa landsleiki, segir Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, um Glódísi Perlu Viggósdóttur sem missir af leikjunum mikilvægu við Noreg og Sviss í Þjóðadeildinni.

Glódís sneri aftur í byrjunarlið Bayern München í gær gegn Leverkusen, spilaði 82 mínútur og virtist ekki kenna sér meins þegar henni var skipt af velli.

Hún hefur hins vegar verið glíma við hnémeiðsli í nokkurn tíma og þau hafa haldið henni frá keppni með Bayern að undanförnu. Því hefur ríkt óvissa um hvort hún næði spila leikina mikilvægu sem fram undan eru með landsliðinu, næsta föstudag og svo 8. apríl, en er ljóst hún verður ekki með og missir því í fyrsta sinn á sínum ferli af landsleikjum vegna meiðsla.

Ekki þarf fjölyrða um það hvílíkt áfall það er fyrir Ísland missa fyrirliðann, besta leikmanninn og íþróttamann ársins út en landsliðsþjálfarinn segir horfa verði lengra fram í tímann. Um þrír mánuðir eru í lokakeppni EM hefjist í Sviss.

Horfir lengra fram í tímann með Glódísi

Hún verður einhvern tíma jafna sig eftir gærdaginn, segir Þorsteinn við Vísi og bætir við: Mér fannst það ekki þess virði taka hana inn í landsleikina og taka einhvern séns á hún myndi verða ennþá verri.

Við þurfum horfa lengra fram í tímann, þannig hún verði leikfær fyrir okkur seinna meir. Og við vitum ekki hvort hún hefði hvort sem er getað spilað. Það er alveg óvíst. Miðað við síðasta leik sem hún spilaði þá tók hana rúmar tvær vikur jafna sig.

Leikir sem skipta sköpum í baráttu um veru í A-deild

Ísland hóf keppni í Þjóðadeildinni á tveimur útileikjum og gerði þá markalaust jafntefli við Sviss en tapaði 32 gegn Frakklandi. er komið fyrstu heimaleikjunum en liðið mætir Noregi á föstudag klukkan 16:30 og svo Sviss þriðjudaginn 8. apríl, einnig klukkan 16:30. Báðir leikirnir fara fram á Þróttarvelli vegna framkvæmda sem standa yfir á Laugardalsvelli.

Ísland, Frakkland, Noregur og Sviss eru saman í riðli í A-deild og kemst efsta liðið í úrslit keppninnar. Efstu tvö liðin eru örugg um halda áfram í A-deild, neðsta liðið fellur en liðið í 3. sæti fer í umspil um halda sér í A-deild. leika í A-deild á næstu leiktíð myndi hjálpa Íslandi mikið í baráttunni um komast á HM 2027.

Nafnalisti

  • A-deildríki
  • Bayernstigi
  • Glódís Perla Viggósdóttirlandsliðskona
  • LeverkusenÞýskaland
  • Þorsteinn Halldórssonlandsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 420 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.