Skoða bryggju austan við Vík

Ritstjórn Bændablaðsins

2025-03-31 12:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fyrirtækið EP Power Minerals Iceland ehf. hyggst gera bryggju við Alviðruhamra á austanverðum Mýrdalssandi. Matsáætlun framkvæmdaaðila hefur verið lögð fyrir skipulagsstofnun.

Bryggjan er hugsuð til flutnings á efni úr námum á Háöldu við Hafursey. Viðlegukanturinn á geta tekið á móti skipum sem eru stærri en 1.350 tonn. Gert er ráð fyrir mjórri rörabryggju sem nær tvo kílómetra út í sjó og 200 metra viðlegukanti við enda hennar. Utan við bryggjuna þyrfti gera eins kílómetra langan varnargarð til skýla fyrir öldugangi, enda svæðið fyrir opnu hafi. Áætluð efnistaka á Mýrdalssandi er 146 milljónir rúmmetrar og mun það nýtast við sementframleiðslu á meginlandi Evrópu. Fyrri áætlanir miðuðu því flytja efnið landleiðina höfninni í Þorlákshöfn, en mættu þær mikilli andstöðu. Alviðruhamar er tólf kílómetra vestan við ósa Kúðafljóts og suðvestan við Álftaver. Í skýrslu framkvæmdaaðila kemur fram það einn af fáum stöðum við suðurströndina þar sem fast berg nær nánast alla leið til sjávar. Framkvæmdaaðilar segja tvo kosti koma til greina við flytja efnið frá námunni bryggjunni. Annað hvort verður flytja það með færibandi yfir sandinn eða með vörubílum á sextán kílómetra löngum vinnuvegi. Í báðum tilvikum þyrfti gera göng undir þjóðveg 1.

Með stuttri flutningsleið og sérhannaðri bryggju er áætlað útflutningur á efni geti verið allt fimm milljónir tonna á ári sem þýðir efni námunnar mun endast í þrjátíu ár. Fyrri áform um þjóðvegaflutning til Þorlákshafnar gáfu eingöngu færi á flytja 500 þúsund tonn á ári. Opið er fyrir athugasemdir í skipulagsgátt til 16. apríl nk.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 269 eindir í 16 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,80.