Stjórnmál

Miklu stærra en Icesave-málið

Ritstjórn Bæjarins besta

2025-03-31 11:50

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Málið sem kennt er við bókun 35 við EES-samninginn er í raun miklu stærra en bæði Icesave-málið og málið varðandi þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Miklir fjárhagslegir hagsmunir voru í húfi í Icesave-málinu sem snerist þó einungis um eina tiltekna lagagerð sambandsins. Tilskipun þess um innistæðutryggingar. Þriðji orkupakkinn varðar að sama skapi mikla hagsmuni í orkumálum en snýst þó að sama skapi um afmarkað regluverk.

Frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 varðar hins vegar allt regluverk frá Evrópusambandinu sem hefur verið og mun verða tekið upp hér á landi í gegnum EES-samninginn og gerir hana í reynd æðri almennum innlendum lögum. Þar á meðal er um ræða allt regluverk sem tekið hefur verið og verður tekið upp upp frá sambandinu í framtíðinni varðandi bæði innistæðutryggingar og orkumál.

Verði frumvarp Þorgerðar lögum verður til forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem þegar eru fyrir hendi hér á landi þegar almenn lagasetning er annars vegar, þar sem yngri lög ganga fyrir þeim sem eldri eru og sértækari lög fyrir almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt og aðeins eitt um ræða innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og í raun fara þvert á hinar.

Versta mögulega staðan sem gæti komið upp, næði frumvarp Þorgerðar ekki fram ganga og málið færi í kjölfarið mögulega fyrir EFTA-dómstólinn, væri komizt yrði þeirri niðurstöðu fara bæri kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu. Með öðrum orðum það sem frumvarpið felur í sér! Um fyrirfram uppgjöf er ræða án þess látið í það minnsta reyna á málið fyrst fyrir dómi.

Dómstólaleiðin þýddi möguleiki væri á því dæmt yrði okkur í vil. möguleiki er hins vegar engu gerður með því gefast upp fyrir fram eins og til stendur með frumvarpinu. Ef það uppfyllti ekki kröfur ESA myndi það eðli málsins samkvæmt kalla á frekari aðgerðir af hálfu stofnunarinnar þar til yrði raunin. Tal um frumvarpið hugsað til þess tryggja íslenzk stjórnvöld hafi forræði á málinu stenzt þannig alls enga skoðun.

Hjörtur J. Guðmundsson

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur.

Nafnalisti

  • Hjörtur J. Guðmundssonsagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 365 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 94,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.