Stjórnmál

Ólöfu ofbauð framferði Ásthildar Lóu og vildi fund með Kristrúnu - „Ég er ekki að bjóða Ásthildi Lóu á fundinn“

Ritstjórn DV

2025-03-21 18:35

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Eins og ég sagði við hana þegar hún hringdi í mig. Ég sagði, ástæðan fyrir því ég vil þú víkir sem barnamálaráðherra, þú skreiðst upp í til fimmtán ára stráks og það er nóg fyrir mig.

Svo mælir Ólöf Björnsdóttir, fyrrverandi tengdamóðir barnsföður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna- og menningarmálaráðherra. Í viðtali við RÚV lýsir Ólöf ástæðu þess hún tók sig til og sendi tölvupóst á forsætisráðuneytið og óskaði eftir fundi með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, um málefni Ásthildar Lóu.

Rétt er geta þess fyrr í dag baðst Ólöf undan viðtali við DV að svo stöddu á meðan hún íhugaði hvernig hún myndi svara fyrir sig.

Talsvert hefur verið tekist á um hvort forsætisráðuneytið hafi brotið trúnað með því aðstoðarmaður Kristrúnar kom þeim skilaboðum til Ásthildar Lóu Ólöf væri falast eftir fundi með forsætisráðherra til ræða eitthvað tengt henni. Í kjölfarið hringdi Ásthildur Lóa í Ólöfu til grennslast fyrir um hvað hún hefði í hyggju og mætti sömuleiðis heim til hennar í Kópavog.

RÚV hefur aðeins birt brot úr áðurnefndu viðtali en í því kemur fram Ólöf hafi viljað fullan trúnað um málið og hún hafi viljað hitta Kristrúnu í nokkrar mínútur, segja henni frá erindi sínu og svo gæti forsætisráðherrann í kjölfarið kallað Ásthildi Lóu á fundinn ef Kristrún teldi það heppilegt.

Ég er ekki bjóða Ásthildi Lóu á fundinn. Ég er bara benda Kristrúnu á það þegar hún er búin vita hvert málefnið er, af því ég var reyna koma því það væri málefni sem væri svolítið viðkvæmt og snerti hana, Ásthildi. Ef Kristrún vildi hitta mig og vita efnið þá mætti hún kalla á Ásthildi inn, og ég skyldi alveg feisa hana með af hverju ég væri í þessum látum, segir Ólöf.

RÚV fjalla nánar um málið í kvöldfréttum kl. 19.00.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Ólöf Björnsdóttir

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 328 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.