Ætla að sigra vopnakapphlaup við Rússa

Samúel Karl Ólason

2025-03-06 14:44

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins ætla í umfangsmikla hernaðaruppbyggingu á næstu árum. Stíft er fundað um varnarmál í Brussel þessa dagana en í dag fer fram leiðtogafundur þar sem þeir ræða auknar fjárveitingar til varnarmála og uppbyggingu hergagnaframleiðslu í Evrópu.

Markmiðið er gerbreyta öryggiskerfi Evrópu og reiða mun minna á Bandaríkin en áður hefur verið gert. Þetta er í kjölfar þess Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og embættismenn hans hafa sagt Evrópa verði bera meiri ábyrgð á eigin öryggi og í kjölfar þess Trump-liðar hafa fært Bandaríkin mun nær Rússlandi og jafnvel talað máli Rússa.

Sjá einnig: Talsmaður Pútíns hrósar Rubio fyrir ummæli um leppastríð

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, tilkynnti fyrr í vikunni áætlun ESB um allt átta hundruð milljarða evra aukningu til varnarmála á komandi árum

Fyrir fundinn í dag sagði hún þessa daga hafa mikla þýðingu fyrir Evrópu. Heimsálfan stæði frammi fyrir skýrri ógn og þyrfti geta varið sig og staðið við bak Úkraínumanna en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu er á fundinum. Hún sagði áætlun ESB myndi styrkja hergagnaiðnað Evrópu og leiða til aukinna fjárfestinga í geiranum.

Rússland muni tapa

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands og fyrrverandi forseti leiðtogaráðs ESB, sagði í dag stríðið í Úkraínu, mikil óvissa í alþjóðamálum og gífurlega umfangsmikil hergagnaframleiðsla Rússlands fæli í sér ríki Evrópu hefðu engra kosta völ.

Evrópa verður vera tilbúið í þetta vopnakapplaup og Rússland mun tapa því eins og Sovétríkin gerðu fyrir fjörutíu árum.

Hann sagði frá deginum í dag myndi Evrópa vígbúa sig betur og hraðar en Rússland.

The war, the geopolitical uncertainty and the new arms race started by Putin have left Europe with no choice. Europe must be ready for this race, and Russia will lose it like the Soviet Union 40 years ago. From today, Europe will arm itself more wisely and faster than Russia.]] -Donald Tusk (@donaldtusk) March 6, 2025

Bloomberg segir tillaga Þjóðverja um breyta fjárlagareglum ESB til gera aðildarríkjum kleift auka fjárveitingar til varnarmála hafi notið stuðnings meðal þjóðarleiðtoga sambandsins.

Meiri peningar en lítil framleiðsla

Bæði herir Evrópu og hergagnaiðnaður heimsálfunnar hafa þó séð betri tíma. Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu.

Vegna upprunalegrar innrásar Rússa í Úkraínu og þrýstings frá Bandaríkjamönnum skuldbundu margir leiðtogar NATO-ríkja Evrópu sig árið 2014 til hækka fjárútlát til varnarmála í að minnsta kosti tvö prósent af vergri landsframleiðslu og gáfu þeir sér tíu ár til því markmiði.

Síðan þá hafa mörg af ríkjunum náð því markmiði.

Pólverjar hafa til mynda farið úr 1,88 prósentum árið 2014 í 4,12 prósent árið 2024. Eistar hafa farið úr 1,93 prósentum í 3,43 og Lettar úr 0,94 í 3,15.

Finnar fóru úr 1,45 í 2,41. Danir úr 1,15 í 2,41. Norðmenn úr 1,54 í 2,2 og Svíar úr 1,06 í 2,14.

Króatar, Portúgal, Ítalía, Kanda, Belgía, Lúxemborg, Slóvenía og Spánn eru einu ríkin innan NATO sem hafa ekki farið yfir tvö prósent af landsframleiðslu til varnarmála.

Þrátt fyrir þetta hefur hergagnaiðnaður Evrópu ekki tekið miklum breytingum. Fáar nýjar verksmiðjur hafa verið reistar og á það sama við nýjar framleiðslulínur.

Jafnvel eftir innrásina 2022 hefur lítið breyst hjá hergagnaframleiðendum Evrópu, annað en unnið hefur verið á fleiri vöktum en áður.

Í stað þess framleiðsla hafi aukist mikið, hafa mun fleiri samningar um framleiðslu hergagna eins og skotfæra fyrir stórskotalið og flugskeyti eingöngu leitt til lengri biðtíma eftir afhendingu hergagnanna.

Þetta er mestu rakið til þess forsvarsmenn þessara fyrirtækja hafa ekki getað gengið því föstu um langvarandi breytingu ræða og vegna skorts á opinberu fjármagni. Enginn vill reisa nýjar verksmiðjur fyrir framleiðslu sem ekki liggur fyrir eftirspurn verði eftir áratug síðar eða jafnvel minna.

Óhagkvæm framleiðsla

Evrópa á þó vægast sagt mikið verk fyrir höndum og eru fyrir því margar ástæður sem farið verður betur yfir hér að neðan.

Embættismenn innan veggja Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins telja eftir Rússar hætta stríði þeirra í Úkraínu, muni það taka ríkið frá þremur til sjö árum byggja her sinn upp nýju. Margir óttast í kjölfar þess gætu Rússar látið til sín taka annars staðar í Evrópu og þá helst fyrir botni Eystrasalts.

Þetta er knappur tími til fara í umfangsmiklar endurbætur á hergagnaiðnaði, samhliða mikilli hernaðaruppbyggingu.

Varnir Evrópu mörgu leyti óhagkvæmar og er mikil þörf á umfangsmiklum endurbótum þegar kemur skilvirkni og einföldun. Mun meiri samhæfingu þarf innan Evrópu, bæði varðandi hergagnaframleiðslu og varðandi það hvað er framleitt.

Verskmiðjur í mismunandi ríkjum Evrópu eru til mynda notaðar til framleiða sömu hergögnin en misskilvirkt. Til dæmis, gætu verið samskonar verksmiðjur í Frakklandi og í Svíþjóð sem framleiða 155mm sprengikúlur fyrir stórskotalið. Áðurnefnd óhagkvæmni felst í því verksmiðjan í Svíþjóð framleiðir fleiri skot fyrir minni pening en franska.

Það gæti þó reynst ráðamönnum í Frakklandi erfitt og óvinsælt loka eða breyta verksmiðjunni, til auka skilvirkninina, vegna starfa sem breytast eða tapast.

Óhagkvæmni sem þessa finna víða innan hergagnaframleiðslu Evrópu.

Of fjölbreytt hergögn

Þá nota herir Evrópu fjölda mismunandi skriðdreka, skotvopna, stórskotaliðsvopna, flugvéla og svo mætti lengi telja. Þetta gerir bæði innviði, birgðakeðjur og viðhald mun flóknara en það þyrfti vera.

Hergagnaiðnaður Evrópu er mörgu leyti upp á hergagnaiðnað Bandaríkjanna kominn. Það á sérstaklega við á sviði framleiðslu háþróaðra vopna eins og eldflauga, flugskeyta, flugvéla og annarskonar hergagna þar sem notast er við mikið af íhlutum frá Bandaríkjunum.

Auk þessa tekur einnig tíma koma upp aðfangakeðjum. Það er að segja tryggja framboð stáls, sprengiefna og annarra aðfanga fyrir hergagnaframleiðslu.

Til fylla upp í skarðið þar til hergagnaiðnaður Evrópu kemst á skriðið, ef það gerist yfir höfuð, gætu ríki Evrópu þurft leita annað en til Bandaríkjanna. Þar koma ríki eins og Suður-Kórea og Tyrkland til greina. Suðurkóreumenn framleiða til mynda mikið af stórskotaliðsvopnum sem hafa notið vinsælda víða og hafa Pólverjar til mynda keypt töluvert af slíkum vopnum þaðan.

Ríki Evrópu gætu einnig þurft draga úr væntingum varðandi hergögn, til geta frameitt meira, í það minnsta í bili. sleppa því sér Ferrari og sætta sig við VW Golf, ef svo segja.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Donald Tuskforseti leiðtogaráðs ESB og fyrrverandi forsætisráðherra Póllands
  • Europebakvið luktar dyr, og vegna þess að kortafyrirtækið á nú von á hátt
  • Fromvefsíða
  • Marchaðstoðarmaður Rangnick
  • Putinauðvitað málsvari meginhagsmunahóps, ólígarkanna
  • PútínsRússlandsforseti
  • Rubiosá eini af frambjóðendum repúblikanaflokksins sem fór
  • Russiabók
  • Soviet Union
  • Suður-Kóreatalið eitt af sigurstranglegustu liðum mótsins
  • Ursula von der Leyenforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
  • Vólódímír Selenskíforseti Úkraínu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1107 eindir í 59 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 50 málsgreinar eða 84,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,72.