Fjórða stýrivaxtalækkunin og flatkökur aftur í boði
Berghildur Erla Bernharðsdóttir
2025-03-19 22:00
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Seðlabankastjóri býst við að fjármálastofnanir lækki vexti í kjölfar 0,25 prósenta stýrivaxtalækkunar í morgun. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að óverðtryggðir vextir muni lækka meira en verðtryggðir vextir vegna hárra raunvaxta.
Þetta er fjórða stýrivaxtalækkun Seðlabankans í röð, en vextir eru nú 7,75 prósent. Áður en vaxtalækkunarferlið hófst höfðu vextirnir verið 9,25 prósent í rúmt ár. Allir nefndarmenn Peningastefnunefndar Seðlabankans studdu stýrivaxtalækkunina.
Ákvörðunin er byggð á því að verðbólga heldur áfram að hjaðna og mældist 4,2 prósent í febrúar. Það er þó talsvert undir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans sem eru 2,5 prósent. Nefndin telur að áfram dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum. Þá hefur hægt á vexti eftirspurnar og spenna í þjóðarbúi er í rénun. Loks hafi dregið úr umsvifum á húsnæðismarkaði.
Býst við að fjármálastofnanir fylgi í kjölfarið
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri bendir þó á að stýrivexti séu enn mjög háir. Þétt aðhald bankans hafi hins vear virkað vel á verðbólgu.
„Við væntum þess að hún haldi alla vega áfram að minnka fram á vor. Þannig að Peningastefnan er að virka mjög vel. Við ætlum að halda henni áfram þar til við náum verðbólgumarkmiðum okkar um 2,5 prósent verðbólgu,“ segir Ásgeir.
Hann segir að fjármálastofnanir hafi fylgt vaxtaákvörðunum Seðlabankans vel eftir og býst við að það gerist einnig nú.
„Ég myndi halda það. Þetta eru að vísu ekki mikil breyting á vöxtunum, en það munar um hana. Ég á von á þær fylgi í kjölfarið,“ segir Ásgeir.
Það vakti athygli að aftur var byrjað að bjóða upp á flatkökur með hangikjöti en hlé var gert á þeirri venju þegar upplýsingafundirnir fluttust úr Seðlabankanum í Safnahúsið vegna viðgerða. Ásgeir segir þetta vísi um að viðgerðunum sé að ljúka.
„Það var alltaf þannig að Seðlabankinn bauð upp á flatkökur með hangikjöti og appelsínugos. Ég get sagt að við förum bráðum að taka okkar húsnæði aftur í notkun og þá verður aftur bæði boðið upp á flatkökur og appelsín á öllum fundum,“ segir Ásgeir glaður í bragði.
Erfiðara að lækka verðtryggða vexti
Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir óverðtryggða vexti á fjármálamarkaði hafa þróast í takt við stýrivexti undanfarið en þar sem raunstýrivextir séu enn um fjögur prósent geti reynst erfiðara að lækka verðtryggða vexti.
„Bankarnir horfa á fleiri þætti en stýrivexti. En við höfum séð óverðtryggða vexti fylgja stýrivöxtunum undanfarið. En þar sem raunvextir eru ekki að lækka þá getur það leitt til þess að verðtryggðir vextir lækka ekki eins mikið,“ segir Jón Bjarki.
Nafnalisti
- Ásgeir JónssonSeðlabankastjóri
- Jón Bjarki Bentssonaðalhagfræðingur Íslandsbanka
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 423 eindir í 29 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 27 málsgreinar eða 93,1%.
- Margræðnistuðull var 1,57.