Setur fimm­tíu prósent tolla á ál og stál frá Kanada

Samúel Karl Ólason

2025-03-11 15:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar setja fimmtíu prósent tolla á stál og ál sem flutt er til landsins frá Kanada. Hann segir það besta sem Kanadamenn geti gert vera verða 51. ríki Bandaríkjanna.

Upprunalega ætlaði Trump setja 25 prósent tolla á þessar vörur en hefur frestað því tvisvar sinnum. Í dag lýsti hann því svo yfir á Truth Social, samfélagsmiðli sínum, hann hefði skipað viðskiptaráðherra sínum hækka tollana um 25 prósent til viðbótar og láta þá taka gildi á morgun.

Trump sagði vera vegna þess Kanada forsætisráðherra Ontario-fylkis hefði sett 25 prósenta viðbótargjald á rafmagn sem íbúar þriggja ríkja Bandaríkjanna kaupa þaðan.

Forsetinn sagði einnig lækki Kanadamenn ekki þetta gjaldi verði einnig settir tollar á bíla og tengda íhluti frá Kanada þann 2. apríl. Trump segir það muni svo gott sem gera út af við bílaiðnaðinn í Kanada, sem er mjög samofinn iðnaðinum í Bandaríkjunum.

Hagsmunasamtök álframleiðenda í Kanada segja um 75 prósent áls sem Bandaríkjamenn flytji inn komi frá Kanada.

Hann hélt því einnig aftur fram Bandaríkin niðurgreiddu Kanada einhvern veginn og ríkið reiddi sig á varnir Bandaríkjanna.

Sjá einnig: Ítrekar honum er alvara um Kanada

Þá sagði hann það besta sem Kanadamenn gætu gert væri leyfa Bandaríkjunum innlima ríkið og gera það 51. ríki Bandaríkjanna. Þessu hefur hann ítrekað haldið fram og ráðamenn í Kanada segja honum alvara. Hann vilji eignast Kanada og ætli beita efnahagslegu valdi Bandaríkjanna til því markmiði sínu.

Wall Street Journal segir virði hlutabréfa í Bandaríkjunum hafa tekið kipp niður á við eftir yfirlýsingu Trumps. Mest hafi lækkunin orðið hjá iðnaðar- og fjármálafélögum í Bandaríkjunum. Það sama á við hlutabéf bílafyrirtækja í bæði Bandaríkjunum og í Kanada.

Fer fram á virðingu

Mark Carney, nýr leiðtogi Frjálslynda flokksins og starfandi forsætisráðherra í Kanada, sagði eftir hann tryggði sér embættið á sunnudaginn ríkisstjórn hans muni viðhalda tollum þar til Bandaríkjamenn sýni íbúum Kanada virðingu og taki þátt í alvarlegum viðræðum um trúverðugar og áreiðanlegar skuldbindingar varðandi frjáls viðskipti.

Sjá einnig: Seðlabankastjórinn Carney verður forsætisráðherra Kanada

Bandaríkin eru ekki Kanada. Og Kanada mun aldrei verða hluti af Bandaríkjunum á neinn hátt, sagði Carney þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína á sunnudaginn.

Kannanir í Kanada hafa sýnt íbúum Kanada er verulega illa við hugmyndir Trumps um ríkið gangi inn í Bandaríkin og hafa ummæli forsetans bandaríska reitt fólk til reiði. Bandarískar vörur hafa víða verið fjarlægðar úr hillum í Kanada.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Mark Carneybankastjóri Englandsbanka
  • Truth Socialsamfélagsmiðill
  • Wall Street Journalbandarískt dagblað

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 432 eindir í 23 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.