Þeir munu túlka Bítlana í þáttum Sam Mendes
Atli Ísleifsson
2025-04-01 08:54
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Fjórir vel þekktir kvikmyndaleikarar hafa verið ráðnir til að túlka sjálfa Bítlana — þá Paul McCartney, John Lennon, George Harrison og Ringo Starr — í nýrri þáttaröð bandaríska leikstjórans Sam Mendes sem áætlað er að verði sýnd 2028.
Greint var frá þessu á kvikmyndamessu í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær þar sem leikararnir mættu á svið ásamt leikstjóranum Mendes. Til stendur að gera fjögurra þátta seríu, þar sem kastljósinu verður beint að einum Bítli í hverjum þætti.
Englendingurinn Harris Dickinson, sem þekktur er úr myndinni Babygirl, mun túlka John Lennon og Írinn Paul Mescal, sem er meðal annars þekktur úr Gladiator II, mun fara með hlutverk Paul McCartney.
Þá mun Írinn Barry Keoghan, sem þekktur er fyrir hlutverk sín í The Banshees of Inisherin, Dunkirk og Saltburn, fara með hlutverk trommarans Ringo Starr, og Englendingurinn Joseph Quinn túlka George Harrison. Quinn vakti síðast athygli fyrir hlutverk sitt sem keisarinn Geta í Gladiator II.
Reiknað er með að þættirnir verði sýndir árið 2028.
Leikstjórinn Sam Mendes er þekktur fyrir að hafa leikstýrt myndum á borð við American Beauty (1999), Road to Perdition (2002), Jarhead (2005), Revolutionary Road (2008), Skyfall (2012), Spectre (2015) og stríðsmyndinni 1917 (2019).
Nafnalisti
- American Beautykvikmynd
- Barry Keoghanírskur stórleikari
- Dunkirkkvikmynd
- George Harrisonbítill
- Gladiator II
- Harris Dickinson
- John Lennontónlistarmaður
- Joseph Quinnleikari
- Paul McCartneyfyrrverandi bítill
- Paul Mescalleikari
- Revolutionary Road
- Ringo Starrbítill
- Roadbeitt kynferðisofbeldi
- Saltburnkvikmynd
- Sam Mendesleikstjóri
- Skyfallmynd
- Spectrekvikmynd
- The Banshees of Inisherinkvikmynd
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 209 eindir í 8 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,95.