Stjórnmál

Tekur við starfi þing­manns í leyfi frá borginni

Kolbeinn Tumi Daðason

2025-04-03 15:23

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Steinþór Einarsson hefur verið ráðinn í starf sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar. Hann tekur við starfinu af Eiríki Birni Björgvinssyni sem er í fimm ára leyfi frá borginni eftir hafa verið kjörinn á þing fyrir Viðreisn í nóvember í fyrra.

Borgarráð samþykkti ráðningu Steinþórs í dag. Steinþór hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra stjórnsýslu á menningar- og íþróttasviði frá árinu 2023 ásamt því vera staðgengill sviðsstjóra, en hann hefur verið starfandi sviðsstjóri frá nóvember 2024.

Steinþór er með íþróttakennarapróf sem grunn- og framhaldsskólakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni og diplóma í markaðs- og útflutningsfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfaði sem íþróttakennari við Foldaskóla í þrjú ár og tók svo til starfa hjá íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar (ÍTR) þar sem hann var skrifstofustjóri rekstrar- og þjónustu í 25 ár.

Steinþór hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra stjórnsýslu á menningar- og íþróttasviði frá árinu 2023 en meðfram störfum sínum hefur hann verið staðgengill sviðsstjóra til margra ára og starfandi sviðsstjóri frá nóvember 2024. Auk þess geta hann hefur verið formaður félags stjórnenda hjá Reykjavíkurborg og verið fulltrúi Reykjavíkurborgar í alþjóðlegu samstarfi á sviði íþrótta- og tómstundamála.

Starf sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar var auglýst laust til umsóknar í lok janúar síðastliðinn þar sem fyrrverandi sviðsstjóri, Eiríkur Björn Björgvinsson, var kjörinn á Alþingi. Borgarráð samþykkti beiðni hans um tímabundið leyfi frá störfum sem geti staðið í allt fimm ár.

Alls bárust 54 umsóknir um starfið en tólf umsækjendur drógu umsóknir sína til baka. Í samræmi við reglur um ráðningar borgarráðs í æðstu stjórnunarstöður var skipuð ráðgefandi hæfnisnefnd.

Í lokaskýrslu ráðgefandi hæfnisnefndar til borgarráðs segir það mat hæfnisnefndar Steinþór Einarsson best til þess fallinn taka við starfi sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar. Samkvæmt umsögn ráðgefandi hæfnisnefndar byggir það meðal annars á yfirgripsmikilli þekkingu hans á málaflokkum sviðsins og því hann hefur, í gegnum árin, leitt fjölda stefnumótandi verkefna og hefur skýra framtíðarsýn á málaflokka menningar og íþrótta, mikilvægi jafnvægis þeirra á milli og samlegðartækifæri.

Þá kom fram í umsögnum Steinþór væri vel liðinn og öflugur stjórnandi sem ætti auðvelt með fólk með sér.

Nafnalisti

  • Eiríkur Björn Björgvinssonfyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og á Fljótsdalshéraði
  • Steinþór Einarssonskrifstofustjóri hjá ÍTR

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 338 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.