Stjórnmál

Eindregin samstaða Evrópuríkja með Úkraínu

Innanríkisráðuneyti

2025-03-28 15:44

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þátt í fjölmennum leiðtogafundi Evrópuríkja í Elysée-höll í París í gær. Emmanuel Macron Frakklandsforseti boðaði til fundarins með skömmum fyrirvara fyrr í vikunni.

Meginefni fundarins var áframhaldandi hernaðarstuðningur við Úkraínu og farið var yfir hvernig tryggja megi sem styrkasta stöðu Úkraínu til framtíðar á þessum viðkvæma tímapunkti í stríðinu við Rússa.

Á leiðtogafundinum í París í gær kom fram mikilvæg samstaða meðal breiðs hóps ríkja um áframhaldandi stuðning við Úkraínu. er nauðsynlegt samræma pólitísku skilaboðin og fylgja eftir tæknilegum fundum um aðgerðir. Vopnahlé er ekki í höfn þó viðræður séu hafnar. Þess vegna þurfum við styrkja varnir Úkraínu enn frekar og bakka ekki með refsiaðgerðir gagnvart Rússum, segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.

Forsætisráðherra lagði áherslu á það í umræðum á fundinum Evrópa samhljóma og skýr í málflutningi sínum. Þá væri mikilvægt sjónarmið Evrópu verði tekin til greina við samningaborðið í vopnahlés- og friðarviðræðum. Hún fagnaði því Evrópuríkin væru efla varnargetu sína til muna en benti á Atlantshafsbandalagið (NATO) yrði ávallt þungamiðjan í öryggis- og varnarmálum álfunnar. Öflugri varnir Evrópu styrki fælingarmátt NATO, ekki síst þegar kemur Norður-Atlantshafssvæðinu.

Þá áréttaði forsætisráðherra Ísland hefði nýlega tvöfaldað framlög sín til stuðnings Úkraínu og myndi halda áfram styrkja varnir landsins, til dæmis í gegnum danska frumkvæðið sem miðar því efla úkraínska vopnaframleiðslu og jarðsprengjuleit. Ísland myndi jafnframt leggja sitt af mörkum við áætlanir sem miðuðu friðargæslu.

Um 30 leiðtogar Evrópuríkja og stofnana Evrópusambandsins (ESB) voru saman komnir á fundinum í Elysée-höll í gær. Fundurinn lýsti yfir eindregnum stuðningi við Úkraínustjórn en Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu var á meðal gesta. Einnig var áréttaður stuðningur við það frumkvæði sem Frakkar og Bretar hafa sýnt að undanförnu. Ríkin tvö hafa unnið áætlanagerð og viðbúnaði fyrir Evrópuþjóðir til stuðnings vopnahléi, ef vopnahlésviðræður sem standa yfir frumkvæði Bandaríkjastjórnar skila árangri.

Nafnalisti

  • Emmanuel Macronforseti
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Vólódímír Selenskíforseti Úkraínu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 326 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 88,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.