Ólíklegt að annað gos hefjist á norðurenda kvikugangsins
Ragnar Jón Hrólfsson
2025-04-01 19:16
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Enn mælist talsverð skjálftavirkni á norðurenda kvikugangsins sem teygir sig um 20 kílómetra frá enda til enda. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, telur ólíklegt að annað gos brjótist út á næstunni.
„Við erum ekki að sjá að það stefni í gos akkúrat núna,“ segir Benedikt sem var gestur í Speglinum í kvöld. Hann vill þó ekki útiloka möguleikann á því að það byrji á gjósa á norðurenda kvikugangsins.
„Eldgosið í dag var ekki stórt en atburðurinn sjálfur var ekki lítill,“ segir Benedikt. „Þetta var talsvert kvikuinnskot og kvikugangur sem myndaðist og að öllum líkindum er stór hluti af kvikunni sem var undir Svartsengi farinn inn í kvikuganginn, allavega vel yfir helmingur,“ segir Benedikt. Enn þá vanti þó gögn um hversu mikið rúmmál var.
Benedikt segir að til dæmis þegar kvikugangurinn myndaðist 10. nóvember 2023 hafi ekki gosið en samt sem áður hafi jörðin opnast mikið. „Síðan koma endurteknir atburðir og kvika flæðir inn og það losnar þessi togspenna sem var þarna fyrir og þú ert farinn að ýta á jarðskorpuna og hún er farin að ýta á móti henni,“ segir hann.
„Væntanlega er meiri spenna í jarðskorpunni sem heldur á móti kvikuflæðinu og það er erfiðara fyrir kviku að komast upp á yfirborðið,“ segir hann. Kvikan sem rennur nærri norðurenda kvikugangsins er enn líklega á um 4 til 5 kílómetra dýpi og ólíklegt að hún muni leita upp á yfirborðið.
Líklega lokakafli eldgosanna
Benedikt telur enn að um lokakaflann sé að ræða í eldgosahrinunni á Reykjanesskaganum. Þó sé erfitt að fullyrða nokkuð um það á meðan atburðurinn er enn í gangi.
„Ég held að við getum alveg staðið við það að þetta sé lokakaflinn í atburðarásinni, það hefur hægt það mikið á rennslinu síðasta árið en hvort það gæti mögulega verið eitt gos eftir, við getum ekkert sagt um það í miðjum atburði,“ segir hann. Mögulega geti tekið marga mánuði að sjá hvernig atburðarásin þróast.
Nafnalisti
- Benedikt Ófeigssonjarðeðlisfræðingur
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 346 eindir í 16 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,69.