Íþróttir

„Væri hel­víti gaman að enda ferilinn svona“

Valur Páll Eiríksson

2025-03-28 15:46

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Handboltakonan Hildigunnur Einarsdóttir leggur skóna á hilluna í vor. Hún ætlar skrifa söguna með liði Vals áður en að því kemur en stærsti leikur tímabilsins er á dagskrá um helgina.

Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með öruggum sigri á Gróttu í gærkvöld og verja þar með titilinn frá því í fyrra. Það gafst ekki mikill tími til fagna því enda stórleikur við Iuventa frá Slóvakíu á dagskrá á sunnudaginn kemur. Þar er sæti í úrslitum EHF-bikarsins undir.

Valur getur orðið fyrsta íslenska kvennaliðið í sögunni til fara í úrslit í Evrópu og segist Hildigunnur, sem hættir í vor, staðráðin í skrifa söguna áður en skórnir fara upp í hillu.

100 prósent. Ég setti mér það markmið í vetur, þegar var ljóst þetta yrði síðasta tímabilið mitt myndi ég njóta. Þetta er búið vera extra langt í vetur og mörg ferðalög. Handboltinn er búinn ganga fram yfir allt hjá manni, og hjá öllum í liðinu. Það er bara gott enda síðasta tímabilið þannig og ég er extra mikið reyna njóta, segir Hildigunnur.

Það væri helvíti gaman enda ferilinn svona, sérstaklega þegar þess vitum við erum í bullandi séns gera þetta. Við erum ekkert ljúga sjálfum okkur með það. Það væri sögulegt gera eitthvað svoleiðis í lokin áður en skórnir fara á hilluna og maður finnur sér eitthvað annað gera, bætir hún við.

Valur mætir Iuventa klukkan 17:30 á sunnudaginn kemur. Liðið er tveimur mörkum undir eftir fyrri leik liðanna ytra.

Fleira kemur fram í viðtalinu sem sjá í spilaranum ofan.

Nafnalisti

  • Hildigunnur Einarsdóttirmezzósópran
  • Iuventaþýskt björgunarskip
  • ValurÍslandsmeistari

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 289 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,71.