Stjórnmál

Gæti hætt en ekki viss: „Ég vinn bara mjög langa vinnu­daga“

Vésteinn Örn Pétursson

2025-03-18 10:49

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins ætlar ekki hætta í bæjarstjórn í Hafnarfirði á næstu vikum. Þá ætlar hún einnig halda setu áfram í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún með heilan hug á báðum stöðum og hún vilji fylgja ákveðnum málum eftir.

Rósa Guðbjartsdóttir var kjörin inn á þing í nóvember sem fjórði þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi. Þá var hún enn bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar en Valdimar Víðisson tók við af henni um áramótin. Þá varð Rósa almennum bæjarfulltrúa og hefur verið síðan þá. Hún hyggst halda áfram sem bæjarfulltrúi næstu mánuði. Sömuleiðis ætlar hún halda áfram í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þrátt fyrir þingsetuna.

Það eru í landinu mörg hundruð bæjarfulltrúar um land allt sem sinna þeim störfum í hlutastarfi með fullri annarri vinnu jafnt hjá hinu opinbera sem og almenna markaðnum. Þingmennska er mínu mati ekkert öðruvísu en hvert annað starf. Á meðan þetta er ekki rekast neitt á og þetta gengur bara vel þá sinni ég þessu hvorutveggja. Það verður til einhverra mánaða, ég mun ekki sitja út allt kjörtímabilið eins og margir hafa gert í gegnum árin og mörg dæmi eru um.

Rósa útilokar ekki klára kjörtímabilið í bæjarstjórn.

Eins og staðan er núna þá hef ég hugsað mér af því ég er oddviti í Hafnarfirði og hef verið í tíu ár, er koma úr starfi framkvæmdastjóra sveitarfélagsins, þá langar mig fylgja eftir stórum og mikilvægum málum sem við höfum veirð vina undanfarin ár og klára þau. Þegar ég er orðin sátt við það þá segi ég mig frá sveitarstjórnarstörfunum.

Störfin skarist ekki á.

Ég er með heilan hug á báðum stöðum. Ég vinn bara mjög langa vinnudaga eins og ég hef alltaf gert.

Hún bendir á ráðherrar séu líka þingmenn. Það hafi aldrei verið spurt hvernig það gangi upp.

Af hverju geta þeir gert hvorttveggja?

Næstu sveitarstjórnarkosningar fara fram vorið 2026.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri greindi frá því í gær hún myndi láta af formennsku í sambandinu. Guðmundur Ari Sigurjónsson sagði sig úr stjórn þegar hann náði kjöri á þing, en hann var áður bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi.

Rósa hefur verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði frá árinu 2006, og var bæjarstjóri frá 2018 og til síðustu áramóta, þegar Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar í Hafnarfirði, tók við embættinu.

Nafnalisti

  • Guðmundur Ari Sigurjónssonbæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Rósa Guðbjartsdóttirbæjarstjóri Hafnarfjarðar
  • Valdimar Víðissonskólastjóri Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
  • Þingmaður SjálfstæðisflokksinsÁsmundur Friðriksson

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 407 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 96,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.