Hvar voru Brooklyn og Nicole?

Ritstjórn mbl.is

2025-04-01 19:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham sló upp heljarinnar veislu, þar sem engu var til sparað, í tilefni af fimmtugsafmæli sínu á dögunum.

Veislan var haldin í hinni sólríku Miami-borg í Bandaríkjunum nokkrum vikum fyrir stóra daginn, en Beckham fagnar hálfrar aldar afmæli sínu þann 2. maí næstkomandi.

Beckham fagnaði deginum ásamt fjölskyldu sinni, vinum og fleiri goðsögnum úr íþróttaheiminum, en meðal gesta voru þeir Shaquille O’Neal, Tom Brady og Lionel Messi.

Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi gaf innsýn í veisluhöldin á Instagram-síðu sinni í gærdag og birti meðal annars glæsilega mynd af sér með eiginkonu sinni, fatahönnuðinum Victoriu Beckham, þremur af fjórum börnum þeirra hjóna, Romeo James, Cruz og Harper Seven og kærustum drengjanna.

Það vakti sérstaka athygli elsti sonur Beckham-hjónanna, Brooklyn, og eiginkona hans, Nicole Peltz, voru ekki viðstödd hátíðarhöldin.

Ástæða þess er ókunn, en þrálátur orðrómur hefur verið á sveimi um Victoriu og Nicole illa við hvor aðra.

Staðurinn til fagna

Það hefur verið ansi vinsælt hjá stjörnunum fagna fimmtugsafmæli sínu í Miami, enda þekkt partíborg.

Leikkonan Eva Longoria hélt nýverið upp á fimmtugsafmæli sitt með pompi og prakt á veitingastaðnum Casadonna í borginni og sýndi frá herlegheitunum á Instagram.

Nafnalisti

  • Cruzforsetaframbjóðandi Bandalags frjálslyndra borgara, eina stjórnarandstöðuflokksins sem enn telst löglegur í Níkaragva
  • David Beckhamfyrrverandi fótboltamaður
  • Eva Longoriabandarísk leikkona
  • Harper Sevenyngsta barn hjónanna og jafnframt eina dóttir þeirra
  • Lionel Messiknattspyrnumaður
  • Nicolefellibylur
  • Nicole Peltz
  • Romeo James(f. 2002)
  • Shaquille O’Nealhinsvegar 2.16 metrar á lengd
  • Tom Bradyleikstjórnandi Tampa Bay Buccaneers
  • Victoriustjörnuhjónanna
  • Victoriu Beckhamtískudrottning

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 206 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.