Egill furðu lostinn eftir ferðalag um vegi landsins og margir taka undir – „Hvað veldur og hvað er til ráða?“

Ritstjórn DV

2025-03-31 09:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Egill Helgason, sjónvarpsmaður og fjölmiðlamaður, segist vera furðu lostinn eftir hafa á rúmi undanfarinni viku ekið vestur um Dali, til Keflavíkur, á Akranes, á Selfoss um Hellisheiði og heim um Þrengslin.

Egill gerði þetta umtalsefni á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Ég er eiginlega furðu lostinn upplifa hvað vegakerfið er í bágu ásigkomulagi. Vegir illa slitnir og holóttir og svo eru það djúpu hjólförin sem eru í malbiki og eru mög óþægileg, sérstaklega í vætutíð. Þetta er mikið umhugsunarefni, hvað veldur og hvað er til ráða, spurði Egill og ekki stóð á svörunum.

Þungaflutningar

Þegar þetta er skrifað hafa hátt í hundrað athugasemdir verið skrifaðar við færsluna og taka margir undir gagnrýni Egils um afleitt ástand á sumum vegum.

Hvað veldur er einfalt mál. Þungaflutningar með fisk fyrir kvótagreifana, segir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur. Margir taka í svipaðan streng. Þungaflutningar og mikil umferð ferðamanna, segir til dæmis einn. Hér var engin ríkisstjórn og tíu ár, segir Hallgrímur Helgason rithöfundur.

Aðrir bendir á vegir og götur á Íslandi séu í viðkvæmri stöðu eftir snjóa leysir og þessi staða eðlileg afleiðing af notkun kerfisins. Við þessu lítið gera annað en bæta skemmdir, en til þess þurfi væntanlega fjármagn.

Taldi 150 holur

Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður birti tengil á frétt sem hann birti á Vísi um helgina. Í henni kom vegakerfið meðal annars til umræðu og var haft eftir Línu Björg Tryggvadóttur, sem búsett er í Þorlákshöfn en starfar sem byggðaþróunarfulltrúi uppsveita Árnessýslu, hún hefði talið 150 holur í veginum á leið sinni í Aratungu í Bláskógabyggð. Hún gafst upp en átti samt hálftíma eftir í Aratungu.

Blaðamaðurinn Baldur Guðmundsson bendir á einn bíll af þyngstu gerð slíti vegi eins og 280 þúsund smábílar. Vísar hann í graf sem birtist í Heimildinni máli sínu til stuðnings.

Um Öxnadal fara um 1600 bílar meðaltali á dag. 580 þúsund bílar á ári. Ef við gefum okkur þær tilbúnu forsendur það væru allt smábílar myndu tveir til þrír flutningabílar af þyngstu gerð slíta veginum jafn mikið og öll önnur umferð þess árs. Fyrir nokkrum árum voru um 160 flutningabílar í akstri á degi hverjum. Þeim hefur líklega fjölgað hratt síðan, vegna fiskeldis. Við gætum sennilega niðurgreitt strandsiglingar töluvert án þess tapa á því, ef það yrði til þess draga úr þungaflutningum á vegum landsins um helming, segir Baldur en umræðuna alla sjá hér að neðan.

Nafnalisti

  • Baldur Guðmundssonveiðimaður
  • Egill Helgasonsjónvarpsmaður
  • Facebook-síðufylgdi pistli um sumarskrifstofu samgönguráðherrans Ketil Solvik-Olsen, þegar lesandi benti á í athugasemd að skrifstofunni, fjölsæta bifreið með sportlegum reiðhjólum áfestum, var einmitt lagt á akrein sem ætluð er þeim síðarnefndu
  • Hallgrímur Helgasonrithöfundur
  • Haraldur Sigurðssoneldfjallafræðingur
  • Lína Björg Tryggvadóttirverkefnastjóri
  • Magnús Hlynur Hreiðarssonfréttamaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 439 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.