Heilsa og lífsstíll

Kríla­eggið frá Freyju er ævin­týra­lega sætt

Freyja

2025-04-04 12:51

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Íslensk páskaegg eru órjúfanlegur partur af páskahaldi landsmanna. Páskahefðir Íslendinga eru í stöðugri þróun og vöruúrvalið þróast í takt við breytingar. Hefðirnar í kringum páskaeggin eru alveg jafn mikil upplifun og neyta sjálfra eggjanna.

Hjá fjölskyldum er undirbúningurinn stór partur af upplifuninni, hvort sem það er biðin, undirbúa ratleik eða finna góðan felustað, segir Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri sælgætisgerðarinnar Freyju. Hjá öðrum er páskaeggjasmakk með vinum og vinnufélögum fyrir sjálfa páskana orðið vinsælt, svo getur komið upp mjög tilfinningalega þrungin umræða í kringum hvernig skuli opna páskaegg.

Smekkur landsmanna er í stöðugri þróun segir Pétur. Sælgætisgerðin Freyja var frumkvöðull því bæta við sælgæti í súkkulaðiskelina á íslenskum markaði. Þegar Freyju Rísegg leit dagsins ljós árið 2005 var það algjörlega nýtt. Núna sjáum við árlega mikla aukningu í sölu á páskaeggjum með sælgæti í súkkulaðiskelinni og koma nýjungar í þeim efnum á hverju ári.

Málshátturinn er þó hefð sem hefur haldist nánast óbreytt frá upphafi en Íslendingar leyfa sér láta bragðið ráða för við val á páskaeggi. Páskarnir skipa stóran part af starfsemi okkar hjá Freyju, í aðdraganda er alltaf mikið líf og fjör hér innanhúss enda er hlutverk okkar skapa bragðgóðar íslenskar minningar með þjóðinni.

Óþreytandi bjartsýnien ekki gott bíða of lengi

Þjóðarsálin hjá okkur Íslendingum er mjög nýjungagjörn og við erum það líka hér í Freyju þrátt fyrir halda fast í ákveðnar hefðir og framleiðsluaðferðir, þá þykir okkur virkilega gaman þróa og setja á markað páskaegg.

Í ár er nýjungin frá Freyju Krílaegg. Það er lítið egg á fæti sem er ævintýralega sætt. Súkkulaðiskelin er fyllt með litríkum súkkulaðiperlum og er eggið sjálft að sjálfsögðu fyllt með Freyju sælgæti og málshætti. Þetta er fyrsta litla eggið á fæti þar sem súkkulaðiskelin er með sælgæti. Krílaeggið er tilvalið fyrir páskaeggjaleit, fyrir þá sem vilja taka forskot á páskasæluna eða einfaldlega til þess njóta í hófi.

Freyja er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi en hún var stofnuð af Íslendingum sem voru fullir af óþreytandi bjartsýni árið 1918 á sögulegum en mjög krefjandi tíma. Á þessum tíma var Ísland öðlast sjálfstæði frá Danmörku, Spænska veikin gekk yfir Reykjavík, fyrri heimsstyrjöldinni var ljúka og ofan á allt gaus ein stærsta eldstöð landsins, Katla. Þetta lýsir vel þjóðarsálinni, láta sér detta í hug setja á fót sælgætisgerð á miklum umbrotatímum í íslenskri sögu.

Enn þann dag í dag er menningin hjá Freyju full af óþreytandi sér íslenskri bjartsýni segir Pétur. Í vöruþróunarferli á nýjum páskaeggjum koma oft á tíðum upp hnökrar, þá gefumst við aldrei upp fyrr en við höfum náð réttum gæðum. Núna hefur úrvalið frá Freyju aldrei verið breiðara, en vinsælust eru alltaf Rís- og Draumaeggin. Þar fast á eftir fylgja Djúpueggin, Bombueggin, Saltkaramellueggið og Fjöreggið.

Eigi fólk sér uppáhalds páskaegg mælum við með því tryggja sér það tímanlega því sumar tegundir seljast einfaldlega upp. Í þeim málum þýðir ekki vera yfir sig bjartsýnn finna allar tegundir á sjálfan Páskadag.

Nafnalisti

  • Freyjaframtakssjóður
  • Freyja Krílaegg
  • Freyja Rísegg
  • Katlaíslensk þáttaröð
  • Pétur Thor Gunnarssonframkvæmdastjóri Freyju

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 542 eindir í 27 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 27 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.