Viðskipti

Samningur HSÍ við Ra­pyd – Opið bréf til fram­bjóðenda í for­mannskjöri

Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta

2025-04-04 12:32

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Laugardaginn 5. apríl fer fram formannskjör í HSÍ. Þessu erindi og eftirfarandi spurningu er beint til frambjóðenda í formannskjörinu:

Munt þú beita þér fyrir því HSÍ segi upp samningi sínum við greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd eða endurnýi ekki samninginn þegar hann rennur út?

Við sem baki erindinu stöndum erum stuðningsfólk Íslands í handbolta. Við erum meðal fjölmargra Íslendinga sem finnst óboðlegt HSÍ með samning við ísraelska fyrirtækið Rapyd og merki þess á búningum íslensks handboltafólks.

Ísraelska fyrirtækið Rapyd styður ísraelska herinn

Ástæðan er forstjóri og aðaleigandi Rapyd hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við árásir Ísraels á Gaza. Fyrirtækið hefur jafnframt unnið með og stutt ísraelska herinn í yfirstandandi aðgerðum og árásum á Gaza. Auk þess hefur aðaleigandi Rapyd, sem jafnframt er stjórnarformaður útibúsins á Íslandi, sagt mannfallið á Gaza engu máli skipta heldur aðeins það Ísrael sigri. Með öðrum orðum styður fyrirtækið hernað sem er tilraun til þjóðarmorðs skv. Amnesty International, Human Rights Watch og kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríkis fyrir Alþjóðadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag.

Með samningi við Rapyd leggur HSÍ blessun sína yfir framgöngu fyrirtækisins. Við getum ekki hugsað okkur handboltalið sem er kennt við Ísland taki þátt í slíku og þar með Íslendingar. Það er ekki eingöngu okkar skoðun heldur vill mikill meirihluti Íslendinga alls ekki skipta við fyrirtæki sem nota Rapyd sem greiðslumiðlun samkvæmt könnun Maskínu frá því fyrir ári síðan. Þá sögðu tæp 60% þau væru sniðganga slík fyrirtæki. hópur hefur örugglega stækkað eftir Ísrael rauf vopnahléið á Gaza og hélt áfram varpa sprengjum á varnarlaust fólk.

HSÍ fórnar trúverðugleika sínum með samningi við Rapyd

Í ljósi þessa er það okkar áliti þjóðarskömm landslið okkar í handbolta skuli skarta merki Rapyd. HSÍ ætti sameina okkur baki sér en ekki starfa með fyrirtæki sem stór hluti þjóðarinnar hefur óbeit á. eru sumir stuðningsmenn landsliðsins farnir líma yfir merki Rapyd á treyjunum sínum til marks um óánægju sína. Auk þess er óboðlegt ungu og efnilegu handboltafólki boðið upp á sækja fjármagn í afrekssjóð sem Rapyd fjármagnar. Við viljum minna á í siðareglum HSÍ stendur félaginu og aðilum þess ekki heimilt þiggja gjafir eða hlunnindi sem geta leitt til þess rýra trúverðugleika, sjálfstæði eða hlutleysi félagsins. Samstarf HSÍ við Rapyd samræmist engan veginn þessari reglu sem félagið hefur sjálft sett sér. HSÍ er ekki trúverðugt ef það metur orðspor sitt svo lítils því megi fórna fyrir blóðpeninga Rapyd.

Slítið samningnum við Rapyd!

Við biðlum til stjórnar HSÍ og frambjóðenda til formanns rifta samningum við Rapyd hið fyrsta og slíta öllu samstarfi félagsins við fyrirtækið. Við vitum það er ekki auðvelt verk fjármagna starf íþróttahreyfingarinnar en það gengur einfaldlega ekki íslensk handboltalandslið auglýsi fyrirtæki sem styður aðgerðir Ísraelshers gegn hernuminni þjóð Palestínumanna. þegar hafa á fimmta hundrað íslenskra fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka hætt viðskiptum við Rapyd af ofangreindum ástæðum eins og hægt er sjá á hirdir.is. Það er ekkert því til fyrirstöðu HSÍ fylgi í þeirra fótspor.

Við vonum verðandi formaður breyti rétt og leiði handboltahreyfingu sem við getum öll stutt með stolti.

Höfundar eru eru stuðningsmenn Íslands í handbolta:

Anna Hlín Bjarnadóttir

Magnea Marinósdóttir

Margrét Kristjánsdóttir

Mist Rúnarsdóttir

Stefán Guðjónsson

Una Mathiesen Nikulásdóttir

Þórður Sveinsson

Nafnalisti

  • Anna Hlín Bjarnadóttir
  • Human Rights Watchmannréttindasamtökin
  • Magnea Marinósdóttiralþjóðastjórnmálafræðingur
  • Margrét Kristjánsdóttirfastagestur laugarinnar
  • Mist Rúnarsdóttirsérfræðingur í Bestu mörkunum
  • Rapydfjártæknifyrirtæki
  • Stefán Guðjónssonforstöðumaður greiningardeildar Arion banka
  • Una Mathiesen Nikulásdóttir
  • Þórður Sveinssonskrifstofustjóri lögfræðisviðs Persónuverndar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 572 eindir í 37 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 32 málsgreinar eða 86,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,74.