Öryggissérfræðingur telur að Ísland sé næst á matseðli Trump á eftir Grænlandi
Kristinn H. Guðnason
2025-03-31 19:30
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Breskur prófessor og sérfræðingur í öryggismálum telur að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni snúa sér að Íslandi næst ef að Bandaríkjunum takist að yfirtaka Grænland.
John Strawson, prófessor við Háskólann í Austur-Lundúnum, segir í viðtali við blaðið The Mirror að allt sé mögulegt þegar komi að Donald Trump og alþjóðamálum.
„Ísland gæti orðið átakamál í framtíðinni en ég held aðallega til þess að styrkja varnir á norðurslóðum. En eins og við vitum þá hefur Donald Trump einnig áhuga á nauðsynlegum steinefnum sem gæti átt þátt í þessu. Með þessa stjórn er allt mögulegt,“ sagði Strawson í viðtalinu.
Sneypuför til Grænlands
Hótanir Trump í garð Grænlendinga og Dana hafa sett allt vestrænt samstarf í uppnám. Hefur Trump neitað að útiloka að nota vopnavald til þess að hernema Grænland.
Nýleg heimsókn varaforsetans J.D. Vance og eiginkonu hans Usha átti að vera til þess að styrkja þessa kröfu Trump. Heimsóknin snerist hins vegar í höndunum á honum þegar í ljós kom að Grænlendingar vildu ekki sjá þetta fólk sem neyddist til að heimsækja aðeins bandaríska herstöð í norðvesturhluta landsins. En búið var að skipuleggja mikil mótmæli við komu Vance hjónanna. Hefur heimsókninni verið lýst sem mikilli sneypuför fyrir Vance og Trump.
Sjá einnig:
Baldur telur það aðeins tímaspursmál þar til Trump beini sjónum sínum að Íslandi
Engu að síður dylst engum að ef Bandaríkjaher myndi ráðast á Grænland væri lítið sem Danir eða Grænlendingar gætu gert í því. En eins og flestir vita hefur hann einnig hótað Kanadamönnum og talað um þá sem fimmtugasta og fyrsta fylkið í óvirðingartón.
Fordæmi fyrir Kínverja
Strawson telur að ef Trump takist að ná Grænlandi undir sig sé Ísland næst á dagskrá. Landfræðileg lega skipti þar miklu máli.
Þrátt fyrir þetta telur Strawson fremur ólíklegt að Trump sendi herlið sitt inn í Grænland. Einkum vegna fordæmisins sem það myndi setja.
„Ég myndi segja að bein árás á Grænland sé ólíkleg þar sem hún myndi setja fordæmi sem Kínverjar myndu nýta sér og líta á sem grænt ljós til þess að ráðast á Tævan,“ sagði Strawson.
Gamall maður að flýta sér
Í grein The Mirror er einnig vitnað í grein David Gauke, fyrrverandi bresks þingmanns, sem sagði enga tilviljun að þetta væri allt að gerast mjög hratt.
„Trump er gamall maður sem er að flýta sér, hann vill festa nafn sitt í sögunni. Að víkka landamærin virðist vera leiðin til þess að gera það, verða eins konar seinni tíma Alexander mikli. En í staðinn fyrir Egyptaland og Persíu lesist Kanada og Grænland,“ sagði Gauke.
Nafnalisti
- Alexandertvíburi
- BaldurBreiðafjarðarferja
- David Gaukefyrrverandi dómsmálaráðherra
- Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
- J.D. Vancerithöfundur
- John Strawson
- The Mirrorbreskur miðill
- Ushaeiginkona
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 440 eindir í 27 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 88,9%.
- Margræðnistuðull var 1,57.