StjórnmálHeilsa og lífsstíll

Fjörið heldur áfram hjá Flokki fólksins í Fjörgyn

Ritstjórn mbl.is

2025-03-23 12:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ládeyða einkenndi samfélagsmiðla stjórnmálafólksins framan af líðandi viku en svo færðist líf í leikana um hana miðja, eða allt þar til málefni fráfarandi barna- og menntamálaráðherra gerðu vart við sig og klauf þjóðina í tvennt.

Atferli íslensks stjórnmálafólks á samfélagsmiðlum er alltaf undir smásjá og því gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Dóra Björt elskar Strætó

Byrjum á byrjuninni. Dóra Björt hélt stríðinu einkabílnum áfram í vikunni þar sem hún hvatti fólk til taka strætó vegna nýrra rauntímaupplýsinga á leiðarkerfinu. Einfaldara verður það ekki nota Strætó að hennar sögn.

Fagur, fagur fiskur í sjó!

Hanna Katrín lagði fram nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða sem eykur kröfur um gagnsæi í eignarhaldi í sjávarútvegi. Af myndinni dæma tæki hún sig vel út sem skipper.

Halla Hrund brosti breitt

Halla Hrund brosti sínu breiðasta þegar hún hafði lokið við sinn fyrsta flutning á þingsályktunartillögu og varðaði orkuöryggi landsmanna. Vel gert hjá Höllu en einhverjir gætu orðið frekar óttaslegnir við sjá þetta bros næturlagi.

Finndu þrjár villur!

Dagur Eggertsson stærði sig af eigin verkum í borginni og slengdi fram before and after mynd til sýna fólki það svart á hvítu hvað hann hafi staðið sig vel sem borgarstjóri. Dagur er svo sannarlega hinn vænasti maður en á myndina vantar strá, bragga og pálmatré.

Funduðu með öllu sem hreyfðist á Vestfjörðum

Það ríkir mikill kærleikur í röðum Viðreisnar líkt og meðfylgjandi Instagram-færsla ber skýrt merki um. Þær Þorgerður Katrín, María Rut og Ingileif fóru í einhverja lúxusvinnuferð á Vestfirði í vikunni og funduðu þar með öllu sem hreyfðist. Fólki, köttum og bara öllu. Þar var líka knúsast mjög mikið og í enda ferðar dýfðu þær að sjálfsögðu tásunum í hinn víðfræga Poll.

Jafnalaunavottun = láglaunavottun

Diljá Mist lét vel í sér heyra á þinginu í vikunni og úthúðaði hinni margrómuðu jafnlaunavottun sem allir elska hata. Kallaði hún jafnlaunavottunina láglaunavottun og það er ekki útaf því hún er svo í loftinu. Það er út af einhverju allt öðru.

Einn, tveir og SÍS

Kristrún og Heiða Björg handsöluðu kærkomna samninga á milli ríkis og sveitarfélaga sem marka mikil tímamót. Að sjálfsögðu hentu skvísurnar í sjálfu af þessu tilefni. Allir segja SÍS!

Jarðhiti jafnar leikinn segja þau

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum kom víða við í vikunni. Johnny Bravo, eða Jóhann Páll, hann var svo hrifinn af erindi Írisar honum fannst tilefni til deila því á grammið sitt. Þau eru sammála Prettyboitjokkóþað vantar smá hita á klúbbinn. Jarðhiti jafnar leikinn segja þau.

Góð heimsókn úr eyjum

Ásthildur Lóa fékk svo góða heimsókn í vikunni. Sko, frá Írisi Róberts, ekki þessum fyrrverandi 15 ára elskhuga eða hvað maður kallar þessa katastrófu. Þar ræddu þær menntamálin af mikilli alúð áður en allt sprakk í loft upp og Ásthildur Lóa sagði af sér.

Alltaf fjör í Fjörgyn

Hvað hérna Bingóið sem Flokkur fólksins bauð í mánudaginn, heldur það enn dagskrá eða hvernig er stemmarinn? Bingó bangó bongó í Fjörgyn-sjáumst þar!

Nýjasta þátt af Spursmálum nálgast í heild sinni í myndbandsspilaranum hér að neðan:

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóaformaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Ragnar Þór formaður VR
  • Dagur Eggertssonborgarstjóri
  • Diljá Mistaðstoðarmaður utanríkisráðherra
  • Dóra Björtborgarfulltrúi Pírata
  • Hallafyrrum blaðamaður
  • Halla Hrundframkvæmdastjóri Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík
  • Hanna KatrínFriðriksson
  • Heiða Björgvaraformaður Samfylkingarinnar
  • Ingileifgestur Einars Þorsteinssonar í Kastljósi kvöldsins
  • Íris Róberts
  • Íris Róbertsdóttirbæjarstjóri
  • Jóhann Pállblaðamaður
  • Johnny Bravo
  • Kristrúnkaupréttarhafi
  • María Rutkynningarstýra UN Women
  • Prettyboitjokkófyrsta lag Patriks sem skaust upp á stjörnuhimininn
  • Þorgerður Katrínformaður Viðreisnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 549 eindir í 43 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 34 málsgreinar eða 79,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,44.