Þekkt venesúelsk glæpasamtök tengd Íslandi

Ritstjórn mbl.is

2025-03-25 19:05

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Venesúelsku glæpasamtökin El Tren Aragua eru með tengingar við Ísland.

Þetta kemur fram í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Greint er frá efni þáttarins á vef Ríkisútvarpsins.

Í þættinum er einnig rætt við venesúelska hælisleitendur sem eru búsettir hér á landi og hafa flúið glæpasamtökin.

Í svari embættis ríkislögreglustjóra segir embættið geti staðfest samtökin hafi tengingar við Ísland en ekki hægt greina frá því hvers eðlis þær eru.

Samtökin hafa verið í fréttum síðustu daga en í síðustu viku sendu Bandaríkin 238 meðlimi samtakanna til El Salvador þar sem þeir munu dvelja í fangelsi. Bandaríkin greiða El Salvador fyrir taka á móti þeim.

Studdist við 200 ára gömul stríðslög

Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf út forsetatilskipun um brottvísun glæpasamtakanna fyrir rúmri viku síðan.

Vísaði hann til stríðslaga frá árinu 1798 sem kveða á um þegar Bandaríkin eru í stríði eða verja af sér innrás yfirvöldum heimilt handsama og/eða senda úr landi alla íbúa, borgara eða þegna óvinaþjóðarinnar sem eru 14 ára og eldri án málsmeðferðar.

Þessum lögum hefur aðeins verið beitt þrisvar í sögu Bandaríkjanna. Meðal annars í fyrri og seinni heimstyrjöldinni.

Skömmu eftir fregnir bárust af tilskipuninni setti James E. Boasberg, alríkisdómari í Washington, forsetanum stólinn fyrir dyrnar og sagðist ætla leggja fram tímabundna skipun sem bannaði ríkisstjórninni notast við löggjöfina.

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna áfrýjaði ákvörðun dómarans strax og var meðlimum samtakanna vísað úr landi.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • El SalvadorMið-Ameríkuríkinu
  • James E. Boasberg
  • Tren Aragua

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 246 eindir í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 78,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.