„Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“

Stefán Árni Pálsson

2025-04-01 16:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hún er nýr borgarstjóri og ætlar sér stóra hluti. Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, talaði um launin, störfin, framtíðarhorfur en kynntist líka persónulegu hliðinni á þessari kraftmiklu konu sem elskar hreyfingu, hollan mat og spilakvöld með fjölskyldunni.

Hún fer alltaf snemma á fætur en segist samt sem áður frekar vera b-manneskja heldur en a. Heiða er 54 ára og fædd á Akureyri, bjó til skiptis í sveitinni hjá ömmu og afa og svo hjá foreldrum inni í . Hún er elst fjögurra systkina og þrátt fyrir planið hafi ekki endilega verið fara í pólitík þegar hún var yngri var umræðan á heimilinu svona:

Ég er alin upp í mikilli pólitík. Báðir foreldrar mínir eru mjög svona vinstri sinnuð og mjög réttsýn og heiðarleg. Við töluðum mikið um allskonar pólitík og alltaf talað við okkur um samfélag, ábyrgð og samkennd og ættum koma heiðarlega fram.

Heiðar fór í Verkmenntaskólann á Akureyri og kláraði þar matsveininn. Hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á mat og sérstaklega hollum mat.

Mitt uppáhald er humar og humarpítsa og það er oft í matinn á þessu heimili. Síðan tók ég náttúrufræðipróf og flutti til Reykjavíkur og var þá reyna komast inn í nám í Svíþjóð og það tókst og ég fór í næringarráðgjöf þar, segir Heiða sem eignaðist son sinn í Svíþjóð með fyrrverandi manninum sínum. Síðan flytur Heiða heim og kynnist núverandi manni sínum Hrannari Birni og eiga þau samtals fjögur börn í dag. Í kjölfarið kláraði hún MBA og hefur haft í nógu snúast allar götur síðan.

Heiða var spurð út í laun hennar en á dögunum var greint frá því hún væri samanlagt með tæpar fjórar milljónir á mánuði í laun. Sem borgarstjóri, stjórnarformennsku í Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, formennsku í stjórn Sambands íslenskrar sveitarfélaga og meira.

Það kom ekki til greina segja af mér formennsku þar sem ég var ekki með varamann í stjórninni. Ef ég hefði sagt af mér formennsku hefði ekki verið neitt til gæta hagsmuna borgarinnar þarna inni, nema aðilar í minnihlutanum sem voru ekki okkur í meirihlutanum mjög vinveittir. Fyrir hagsmuni Reykvíkinga fannst mér það því óábyrgt af mér þangað til það var landsþing og þá var hægt kjósa í minn stað þremur vikum seinna. Ég var ekkert búin reikna saman þessi laun og var ekkert spá í því, var bara spá í verkefnin og treysti ég mér í þau, segir Heiðar sem var ekki búin útborgað þegar viðtalið var tekið.

Hér að neðan sjá innslagið í heild sinni.

Nafnalisti

  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Heiðarbjörgunarsveit
  • Hrannar Björn(f. 1992)
  • Sindri Sindrasonsjónvarpsmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 454 eindir í 21 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 90,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.