Stjórnmál

Sam­þykki annarra verði ekki lengur skil­yrði fyrir hunda- og kattahaldi

Atli Ísleifsson

2025-04-01 06:17

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi sem felur í sér samþykki annarra eigenda eigna í fjölbýlishúsi verði ekki lengur skilyrði fyrir því einstaklingur megi halda hund eða kött í fjölbýlisama þó íbúðir deili sameiginlegum stigagangi.

Um er ræða breytingu á lögum um fjöleignarhús og segir á vef ráðuneytisins frumvarpinu ætlað liðka fyrir hunda- og kattahaldi fólks, óháð efnahag og búsetu. Núgildandi reglur fjöleignarhúsalaganna hafi leitt til þess íbúar fjöleignarhúsa hafi átt minni möguleika á slíku dýrahaldi en fólk sem býr í sérbýli.

Hildur Ýr Viðarsdóttir formaður félagsins, segir í samtali við Morgunblaðið í morgun frumvarpið sjálft gangi of langt hennar mati. Bendir hún á mismunandi skoðanir séu uppi meðal félagsmanna, en í þeirra hópi fólk sem hafi ofnæmi fyrir hundum og köttum eða hræðast dýrin.

Augljósir kostir séu við gæludýrahald líkt og sporna við einmanaleika fólks, en á móti komi nauðsynlegt horfa til sjónarmiða þeirra sem hræðast hunda og katta og þeirra sem eru með ofnæmi.

Fólk axli ábyrgð

Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir Inga hafi í framsöguræðu sinni á þinginu í gær undirstrikað verði frumvarpið lögum muni það auka jafnræði gæludýraeigenda hvað varðar húsnæðisvalkost ásamt því stuðla auknu húsnæðisöryggi þeirra.

Hún benti á í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi gangi reglur um hunda- og kattahald í fjölbýli út á dýrahaldið leyft nema sérstakar og málefnalegar ástæður mæli gegn því. Húsfélög þar gætu sett dýrahaldi skorður, en þyrftu þá rökstyðja þær með tilvísun í hagsmuni íbúatil dæmis vegna ofnæmis eða ónæðis. Á Íslandi væri málum öfugt farið og hér þyrfti fólk samþykki fyrir því halda hund eða kött. Með lagasetningunni myndi Ísland því færast nær þeirri sanngirni sem tíðkaðist annars staðar á Norðurlöndum, segir í tilkynningunni.

Inga sagði ennfremur í ræðunni með breytingunni á frumvarpinu stigið sanngjarnt og málefnalegt skref í átt nútímalegri löggjöf um gæludýrahald. Tekið verði mið af því hvernig fólk búi og lifi og fólki verði treyst til axla ábyrgð.

Við gerum ekki lítið úr áhyggjum nágranna sem eru með ofnæmi, eða sem óttast ónæðien við lítum til þeirra úrræða sem lögin veita þegar. Við ætlum okkur setja réttlátt, skynsamt, heilbrigt og skýrt regluverk um dýrahald-sem styður bæði fólk og dýr, sagði Inga.

Húsfélög geti lagt bann við dýrahaldi

Um frumvarpið segir húsfélög fjölbýlishúsa muni geta sett reglur um gæludýrahald, svo lengi sem þær eru málefnalegar, eðlilegar og byggðar á jafnræði.

Með þeim geta eigendur sammælst um nánara fyrirkomulag dýrahaldsins, svo sem um umgengni og afnot á einstökum hlutum sameignar. Slíkar reglur geta þó eðli máls samkvæmt ekki gengið svo langt þær girði fyrir hunda- eða kattahald í fjölbýlishúsinu enda væri það andstætt markmiði laganna.

Áfram er gert ráð fyrir húsfélög geti lagt bann við dýrahaldi ef dýrið veldur verulegum ama, ónæði eða truflunum og eigandi bregst ekki við áminningum húsfélagsins og ræður bót þar á. Þannig gæti til dæmis húsfélag bannað einstök tilvik dýrahalds ef ofnæmi væri á svo háu stigi sambýli við dýrið yrði óbærilegt og ekki væri hægt finna lausnir til ráða bót þar á.

Í því sambandi er þó lagt til samþykki 2/3 hluta eigenda þurfi fyrir slíku banni í stað einfalds meiri hluta eins og er í dag. Hið sama gildir um tilvik þar sem eigandi dýrs brýtur verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum samkvæmt lögunum eða reglum húsfélagsins, þrátt fyrir áminningar húsfélags. Getur húsfélagið þá bannað viðkomandi dýrhald með samþykki 2/3 hluta eigenda og gert honum fjarlægja dýrið úr húsinu. Dæmi um slíkt brot er lausaganga hunda í sameign eða á sameiginlegri lóð, sem telst alvarlegt brot í þessum skilningi samkvæmt lögunum, segir á vef ráðuneytisins.

Nafnalisti

  • Hildur Ýr Viðarsdóttirhæstaréttarlögmaður
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 673 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.